Herdís Pála til Deloitte

Herdís Pála Pálsdóttir.
Herdís Pála Pálsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Herdís Pála Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Deloitte. Herdís Pála tekur sæti í framkvæmdaráði Deloitte í stað Hörpu Þorláksdóttur sem lét nýverið af störfum sem mannauðsstjóri þess.

Fram kemur í tilkynningu að um sé að ræða nýja stöðu og innifalin í henni séu mannauðsmál, upplýsingatækni og þjónusta.

Herdís Pála hefur undanfarin 6 ár starfað hjá RB sem framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála. Áður starfaði Herdís hjá BYR sem framkvæmdastjóri þróunar- og rekstrarsviðs og þar áður hjá Íslandsbanka.

Herdís er með MBA-próf, með áherslu á mannauðsstjórnun, frá University of New Haven í Bandaríkjunum og B.Ed. frá Kennaraháskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK