Tíu sóttu um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, en embættið var auglýst laust til umsóknar 3. október og rann umsóknarfresturinn út í gær.
Meðal umsækjenda eru aðalhagfræðingur Samtaka atvinnulífsins, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins og framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitafélaga.
Sérstök hæfnisnefnd verður skipuð til þess að fara yfir umsóknir og fjalla um hæfni umsækjenda.
Umsækjendur um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika eru:
Arnar Bjarnason, lektor og framkvæmdastjóri
Ásdís Kristjánsdóttir, aðalhagfræðingur og forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins
Guðrún Johnsen, hagfræðingur
Gunnar Jakobsson, lögfræðingur
Haukur C. Benediktsson, hagfræðingur
Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins
Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga
Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja