SÍ þurfi að bregðast við dökkum efnahagshorfum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: Ásgeir Jónsson, formaður, Rannveig Sigurðardóttir, Þórarinn G. …
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: Ásgeir Jónsson, formaður, Rannveig Sigurðardóttir, Þórarinn G. Pétursson, Katrín Ólafsdóttir og Gylfi Zoëga. Ljósmynd/Aðsend

Samtök iðnaðarins (SI) telja að lækkun verðbólgu og verðbólguvæntinga að verðbólgumarkmiði undanfarið gefið peningastefnunefnd Seðlabankans „góða kjölfestu og svigrúm til þess að lækka stýrivexti“ á fundi nefndarinnar í næstu viku. Ákvörðun peningastefnunefndar verður tilkynnt miðvikudaginn 6. nóvember.

Telja SI að peningastefnunefnd geti hjálpað fyrirtækjum og heimilum að takast á við versnandi efnahagsástand með vaxtaákvörðun sinni og þar með mildað niðursveifluna í efnahagslífinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samtaka iðnaðarins.

„Raunvextir, mældir sem munur á núverandi verðbólgu og stýrivöxtum bankans, hafa hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun. Sama má segja um raunstýrivexti bankans mælda út frá verðbólguvæntingum og stýrivöxtum,“ segir þar einnig.

Seðlabankinn verði að bregðast við aðstæðum

„Aðhald peningastjórnunarinnar hefur því aukist á sama tíma og útlitið í efnahagsmálunum hefur dökknað. Samtök iðnaðarins telja að við þessu þurfi peningastefnunefnd Seðlabankans að bregðast.“

„Vaxtalækkanir Seðlabankans undanfarna mánuði hafa verið mikilvægar í því að styðja við íslenskt efnahagslíf á tíma versnandi efnahagsástands. Rekstarumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur verið krefjandi sem kallað hefur á umtalsverðar hagræðingaraðgerðir. Með réttum aðgerðum í hagstjórn má breyta efnahagshorfum umtalsvert til batnaðar,“ segir þar jafnframt.

Þá er því haldið fram að samdráttur mælist á mörgum sviðum efnahagslífsins, atvinnuleysi hafi aukist og launþegum fækkað í öllum helstu greinum hins almenna vinnumarkaðar. Það hafi dregið úr væntingum um vöxt gjaldeyristekna og hagvöxt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK