Engar vísbendingar um kerfismisnotkun

Game of Thrones er á meðal þess erlenda efnis sem …
Game of Thrones er á meðal þess erlenda efnis sem tekið hefur verið upp á íslandi.

Nýútkomin skýrsla Samtaka iðnaðarins, SI, og Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðanda, SÍK, leiðir í ljós að engar vísbendingar séu til staðar um misnotkun á endurgreiðslukerfi kvikmynda. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins og Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda. 

„Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) fagna niðurstöðum nýútkominnar skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurgreiðslukerfi kvikmynda. Öll verkefnin sem Ríkisendurskoðun rannsakaði voru unnin lögum samkvæmt og ekki fundust neinar vísbendingar um misnotkun á endurgreiðslukerfi kvikmynda samkvæmt rannsóknarniðurstöðum stofnunarinnar. Skýrslan tekur því af allan vafa um hvort misnotkun á endurgreiðslukerfi kvikmynda hafi viðgengist“, segir í tilkynningunni. 

Framleiðendur búi við ófyrirsjáanleg starfsskilyrði

SÍK gerir jafnframt engar athugasemdir við tillögur Ríkisendurskoðunar sem lúta að því að skilyrða þurfi endurgreiðslur við rétt skattskil. 

„Lög nr. 43/1999 vísa skýrt til þess að allur kostnaður sem fellur til og heimilt er að draga frá tekjum af atvinnurekstri fari eftir ákvæðum laga um tekjuskatt. Hefur framkvæmdin því nú þegar verið lögum samkvæmt og framleiðslufyrirtæki fylgt þeim til hlítar líkt og staðfest er í skýrslunni.“

Í áðurnefndri skýrslu er einnig fjallað um mikilvægi endurgreiðslukerfisins fyrir samkeppnishæfni Íslands.

„Fram kemur að árið 2016 hafi löggjafinn talið ástæðu til þess að hækka hlutfall endurgreiðslu til kvikmyndaframleiðslu. Ástæðurnar voru meðal annars þær að gæta þyrfti að samkeppnishæfni Íslands þegar kæmi að því að laða að erlend verkefni á sviði framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis,“ segir í tilkynningunni.

Þar er bent á að kvikmyndaframleiðendur búi við ófyrirsjáanleg starfsskilyrði „sem helgast meðal annars af eftirtöldum þáttum: Erfiðum starfsskilyrðum, smæð markaðarins, takmörkuðu fjármagni til greinarinnar, gengisþróun og almennum verðhækkunum á þjónustu innanlands.“

Segja að ekki sé um styrk að ræða

SI og SÍK minna á að ekki sé um eiginlega styrki að ræða „heldur endurgreiðslu á hluta af þeim kostnaði sem þegar hefur fallið til vegna framleiðslu kvikmyndaverka. Þegar að endurgreiðslu kemur hefur þegar verið greitt inn í ríkissjóð umtalsvert meira en endurgreiðslan nemur, eins og ótal skýrslur hafa sýnt fram á.“

Segja samtökin að endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hafi eingöngu jákvæð áhrif á greiðslujöfnuð ríkissjóðs „og eru án áhættu fyrir ríkissjóð því skila þarf endurskoðuðum fullnaðaruppgjörum áður en til endurgreiðslu kemur. Slíkt kerfi er einfalt og gegnsætt og hefur þessi framkvæmd verið talin einn helsti styrkur þessa kerfis af erlendum aðilum sem hafa framleitt kvikmyndir á Íslandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK