Krónan veitir styrki upp á 7 milljónir

Ráðstefna grænkera, Krónumót HK í fótbolta og Aldingarður æskunnar eru …
Ráðstefna grænkera, Krónumót HK í fótbolta og Aldingarður æskunnar eru á meðal þeirra verkefna sem hlutu styrki frá Krónunni í ár. mbl.is/Hjörtur

„Samfélagsstyrkir Krónunnar eru veittir ár hvert til þeirra sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélögum Krónunnar og/eða hvetja til hollustu og hreyfingu barna. Í ár bárust 220 umsóknir og var heildarupphæð styrkjanna í ár sjö milljónir króna,“ segir í fréttatilkynningu frá Krónunni. 

Ráðstefna grænkera, Krónumót HK í fótbolta og Aldingarður æskunnar eru á meðal þeirra verkefna sem hlutu styrki í ár. 

Fyrra Krónumót HK í fótbolta fer fram í Kórnum um helgina og munu um þrjú þúsund börn taka þátt.

Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar.
Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Við erum alltaf jafn ánægð að sjá hversu margir eru að vinna að metnaðarfullum verkefnum í því skyni að bæta líf og heilsu barna, sem og þau sem eru að vinna að annarri jávæðri uppbyggingu í samfélaginu. Mörg þeirra verkefna sem við styrkjum í ár eru unnin í sjálfboðavinnu og það er ekki síst þess vegna sem við hjá Krónunni viljum leggja okkar [lóð] á vogarskálarnar við að halda þessum góðu verkefnum gangandi“, er haft eftir Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, markaðsstjóra Krónunnar, í fréttatilkynningu. 

Opið verður fyrir styrktarumsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar frá apríl til ágúst 2020.

Verkefnin sem fengu styrk í ár voru:

  • FRAM í Reykjavík fyrir knattspyrnudeild barna
  • Stjarnan í Garðabæ fyrir handknattleiksdeild barna
  • HK í Kópavogi fyrir Krónumót yngri flokka karla og kvenna í knattspyrnu
  • Sundfélag Hafnarfjarðar fyrir Krónumótið — sundmót barna
  • Haukar í Hafnarfirði fyrir Special Olympics-æfingar körfuknattleiksdeildar Hauka
  • Karatedeild Aftureldingar í Mosfellsbæ fyrir barnastarfið
  • Blakdeild Aftureldingar í Mosfellsbæ fyrir úthlutun gefins endurskinsmerkja til grunnskóla nemenda í bænum
  • Víkingur í Reykjavík fyrir barna- og unglingastarf
  • ÍBV í Vestmannaeyjum fyrir barnastarfið 
  • Crossfit Eyjar fyrir Skólacrossfit
  • Fimleikadeild Heklu á Hellu fyrir nýjum áhöldum 
  • Fimleikadeild Hamars Hveragerði fyrir fræðsludegi þjálfara og foreldra iðkenda deildarinnar um svefn og næringu barna og unglinga
  • Hjálparstarf Kirkjunnar fyrir styrktarsjóð vegna tómstundaiðkunar barna og unglinga
  • Ungmennafélagið Þjótandi á Selfossi fyrir frisbígolfvelli.
  • Skátafélag Akraness fyrir ævintýragarð sem verður notaður í uppbyggjandi skemmtun og fróðleik, í útivist og ýmsa hreyfingu
  • Heilsuleikskólinn Skógarás í Keflavík fyrir klifurvegg fyrir krakkana
  • Suðurnesjadeild Garðyrkjufélags Íslands í Keflavík fyrir Aldingarð æskunnar til plöntukaupa
  • Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fyrir aðfangakostnaði á hátíðinni
  • Námsaðstoð Rauða krossins upp í aðstoð barna við lestur og nám á skólabókasöfnum
  • Skíðaskóli Jennýjar á Reyðarfirði fyrir Stubbaskólanum, skíðaskóla fyrir börn. 
  • Björgunarsveitin Kyndill á Klaustri fyrir breytingu á bíl
  • Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli fyrir unglingastarfið
  • Støð í Stöð (Stöðvarfirði) fyrir aðfangakostnaði á bæjarhátíðinni
  • Regnboginn lista- og menningarhátíð í Vík fyrir mat í menningarveislu hátíðarinnar
  • Vegan heilsa í Reykjavík fyrir ráðstefnukostnaði 
  • Landvernd fyrir fræðslumyndbandi
  • Hjólreiðafélagið Tindur fyrir krúttlegasta hjólamót landsins
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK