Míla vísar rangfærslum GR til Neytendastofu

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eru enn og aftur komin í …
Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eru enn og aftur komin í hár saman vegna ljósleiðaratenginga. Mynd/mbl.is

„Vegna umfjöllunar Gagnaveitu Reykjavíkur um niðurtöku á búnaði og ásakanir um meint brot telur Míla nauðsynlegt að leiðrétta rangfærslur og blekkingar GR,“ segir í tilkynningu á vefsíðu Mílu. Þar kemur fram að Míla muni senda formlega kvörtun til Neytendastofu.

Greint var frá því í gær að Gagnaveita Reykjavíkur, samkeppnisaðili Mílu, hefði hafið söfnun á upplýsingum um heimili þar sem talið er að ljósleiðaraþráður Gagnaveitunnar hafi verið ótengdur ólöglega af Mílu í kjölfar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS).

Gagnaveitan lýsti því yfir að stofnunin ætli nú safna gögnum og leita að fleiri tilfellum þar sem mögulegt brot hefur átt sér stað.

Míla verið að greiða úr ólöglegum tengingum GR undanfarin ár

Í svari frá Mílu vegna yfirlýsingar GR segir að í ákvörðun PFS, sem hefur verið staðfest af úrskurðarnefnd fjarskipta og póstmála, hafi GR gengið frá þúsundum tenginga í húsum á höfuðborgarsvæðinu með ólögmætum hætti.

„Undanfarin ár hefur Míla verið að greiða úr þessum ólöglegu tengingum GR. Í þeirri vinnu hefur mat tæknimanna Mílu um hvernig skal standa að verki í örfá skipti ekki farið saman við mat PFS.“

„Þau mál sem PFS hefur úrskurðað um snúast um tengingar við inntak ljósleiðara í kjallara fjölbýlishúsa. Þær niðurstöður hefur GR nú tekið og tengt í tilkynningu sinni til fjölmiðla við umfjöllun um ljósleiðarabox sem eru inni í íbúð hjá notendum. Hið rétta er þó að engin mál sem varða box inni í íbúðum hafa verið til umfjöllunar hjá PFS,“ segir í yfirlýsingu Mílu.

„Vísvitandi rangfærsla“ til þess fallin að kasta rýrð á Mílu

Þá kemur þar fram að blekking GR felist í því að láta notendur halda að ákvörðun PFS, sem fjallar um frágang í inntaki í kjallara, eigi líka við um box inni í íbúð notenda.

„Þessi vísvitandi rangfærsla er til þess fallin að kasta rýrð á vörumerki Mílu sem samkeppnisaðila GR og Míla mun senda formlega kvörtun til Neytendastofu.“

Í yfirlýsingu Mílu kemur einnig fram að Neytendastofa hafi í þrígang frá árinu 2014 úrskurðað GR brotlegt gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu vegna rangfærslna félagsins um samkeppnisaðila.

Yfirlýsing Mílu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK