WAB air boðar til blaðamannafundar

Á bakvið WAB, eða We Are Back, standa m.a. fyrr­ver­andi …
Á bakvið WAB, eða We Are Back, standa m.a. fyrr­ver­andi starfs­menn hins fallna flug­fé­lags WOW, með Svein Inga Steinþórsson, sem stýrði hag­deild WOW, í for­svari. mbl.is/​Hari

Stjórn­end­ur flug­fé­lags­ins sem hef­ur vinnu­heitið WAB hafa boðað til blaðamannafundar í Perlunni í fyrramálið. Á bakvið WAB, eða We Are Back, standa m.a. fyrr­ver­andi starfs­menn hins fallna flug­fé­lags WOW, með Svein Inga Steinþórsson, sem stýrði hag­deild WOW, í for­svari.

Draga átti til tíðinda hjá félaginu um miðjan síðasta mánuð en lítið sem ekkert hefur heyrst frá WAB, fyrr en nú. Samskiptafulltrúi WAB air gat ekkert sagt til um efni fundarins þegar blaðamaður mbl.is leitaði eftir því en fullyrti að draga mun til tíðinda hjá félaginu á morgun. 

ViðskiptaMogginn hefur heim­ild­ir fyrir því að fjár­mögn­un WAB gangi vel. Rætt var um að tek­ist hefði að tryggja 40 millj­ón­ir evra en það hefur ekki fengist staðfest hjá WAB. Kynning á flugi WAB hefur ekki verið tímasett en það gæti breyst eftir fundinn á morgun. 

WAB hóf starfsemi í byrjun ágúst á nýrri skrif­stofu á Reykja­vík­ur­vegi í Hafnar­f­irði, þar sem Acta­vis hafði áður aðstöðu. Sveinn Ingi, for­stjóri og stofn­andi nýja flugfélagsins, sagði að að ekkert myndi stoppa félagið. „Ég er al­veg grjót­h­arður á þessu. Það er ekk­ert sem stopp­ar okk­ur þessa stund­ina“. 

Mach air? 

WAB hefur verið vinnuheiti félagsins líkt og fyrr segir en athygli vekur að tilkynningin sem send var á fjölmiðla í kvöld kemur frá veffanginu mach.is. Lénið var skráð á upplýsingatæknifyrirtækið Premis ehf 12. ágúst, skömmu eftir að WAB hóf störf í skrifstofuhúsnæði í Hafnarfirði. 

Mach, eða útbreiðsluhraði hljóðbylgna í lofti, er þekkt hugtak úr flugheiminum og því gæti vel komið til greina að hið nýja flugfélag muni bera heitir Mach air. Það mun að öllum líkindum skýrast á morgun. 

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK