Elko hreppti hnossið

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/Eggert

Isavia hefur gert samning til þriggja ára við raftækjaverslunina Elko um rekstur tveggja raftækjaverslana í Flugstöðinni. Annars vegar er um að ræða verslun ætlaða farþegum á leið úr landi, en hin er ætluð komufarþegum. Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að Elko hafi átt hagkvæmasta tilboðið, en horft er til fjölda þátta við það mat.

Í tilkynningunni kemur fram að horft sé til bæði tæknilegra og fjárhagslegra matsþátta. Reksturinn var boðinn út þar sem fyrri samningur við Elko er að renna út. Óskað var eftir reynslumiklum aðila sem hefði yfir að ráða úrvali vörumerkja. Gerð var sú krafa að viðkomandi hefði rekið að lágmarki tvær raftækjaverslanir samhliða síðastliðin þrjú ár og hefði yfir að ráða  úrvali vörumerkja og vöruframboði sem samanstæði að minnsta kosti af farsímum, spjaldtölvum, snjallúrum, myndavélum, heyrnartólum, litlum hátölurum og heimilistækjum.

Við mat á tilboðum var m.a. horft til vöruúrvals, verðstefnu, þjónustu, mannauðsmála, hönnunar og upplifunar í verslun auk fjárhagslegra þátta. Sjö aðilar sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 18. júní. Tvö fyrirtæki  sendu gögn til þátttöku, bæði uppfylltu hæfiskröfur og var þeim boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við viðræður og í kjölfar þeirra skiluðu þátttakendur inn lokatilboðum. Valnefnd mat tilboðin til stiga en hún var skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur óháðum ráðgjöfum frá Deloitte og Capacent.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK