Konum í stjórnunarstöðum fjölgar um 15%

Eliza Reid, forsetafrú, flutti erindi á ráðstefnunni og veitti viðurkenningar.
Eliza Reid, forsetafrú, flutti erindi á ráðstefnunni og veitti viðurkenningar. Ljósmynd/FKA

Sextán fyrirtæki og tvö sveitarfélög hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar síðastliðinn þriðjudag þegar ráðstefnan Jafnrétti er ákvörðun fór fram á Grand Hóteli. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem stendur að Jafnvægisvoginni.

„Árangur Jafnvægisvogarinnar er sýnilegur eftir fyrsta ár verkefnisins. Samkvæmt nýlegri könnun þá hafa fyrirtækin sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar í fyrra aukið hlutfall kvenna í millistjórnendastöðum um 15% og stjórnendastöðum um 11%. Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar\TBWA og Morgunblaðið“, segir í tilkynningunni. 

Aðilar úr hópi þeirra sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu geta fengið viðurkenninguna en markmið Jafnvægisvogarinnar er um 40/60 kynjahlutfall í framkvæmdastjórn og stjórn. Var það haft til hliðsjónar við matið.

Fyrirtækjum sem ná markmiðum fjölgar

„Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2018 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum. Auk þess vekja þátttakendur í Jafnvægisvoginni athygli á jafnréttismálum innan sinna fyrirtækja með ýmsum öðrum hætti“, segir í tilkynningu FKA.

Ragnheiður Aradóttir, varaformaður FKA.
Ragnheiður Aradóttir, varaformaður FKA. Ljósmynd/FKA

Aðilarnir sem hlutu viðurkenninguna eru:

  • Akureyrarbær
  • Árnasynir auglýsingastofa
  • Deloitte ehf
  • Guðmundur Arason ehf
  • iClean ehf
  • Íslandsbanki
  • Íslandshótel
  • Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
  • Mosfellsbær
  • Nasdaq Iceland hf.
  • Olíuverzlun Íslands ehf
  • Pipar \ TBWA
  • Reiknistofa Bankanna
  • Rio Tinto á Íslandi
  • Sagafilm ehf
  • Sjóvá
  • VÍS
  • Vörður tryggingar hf.

Í tilkynningu FKA segir að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjái augljóslega hag sinn í því að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum sveitarfélaga.

„Á ráðstefnunni undirrituðu Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær og Seltjarnarnesbær viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar og bættust þar með í hóp sveitarfélaga sem undirrituðu fyrir ári síðan.“

Einnig skrifuðu ellefu fyrirtæki undir „viljayfirlýsingu um að beita sér fyrir auknu kynjajafnvægi innan sinna vébanda og vinna að markmiðum Jafnvægisvogar FKA næstu fimm árin.“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti erindi á ráðstefnunni.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti erindi á ráðstefnunni. Ljósmynd/FKA

Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja

Töluverð fjölgun hefur átt sér stað í hópi fyrirtækja og opinberra aðila sem sjá sér hag í að taka þátt í Jafnvægisvoginni. 

„Enda eru rannsóknarniðurstöður á eina leið. Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Fyrirtækin hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn.“

Eftirfarandi fyrirtæki og opinberu aðilar bættust í hópinn á ráðstefnunni:

  • Byko ehf.
  • Concept Events ehf.
  • Eldey TLH hf.
  • Expectus ehf.
  • Hafnarfjarðarbær
  • KPMG ehf.
  • Orka náttúrunnar
  • Orkuveita Reykjavíkur
  • Reykjavíkurborg
  • Ríkisútvarpið ohf.
  • Samtök atvinnulífsins
  • Seltjarnarnesbær
  • Steypustöðin ehf.
  • Versa vottun ehf
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK