SA slegin yfir fréttum af Afríkuviðskiptum Samherja

Samtök atvinnulífsins segjast slegin yfir fréttum af viðskiptum Samherja í …
Samtök atvinnulífsins segjast slegin yfir fréttum af viðskiptum Samherja í Afríku. Ófeigur Lýðsson

Samtök atvinnulífsins eru slegin yfir þeim fréttum sem birst hafa síðustu daga og snúa að viðskiptum Samherja í Afríku. Þetta kemur fram í tilkynningu sem SA birtir á vef sínum. Segir SA „alvarleg mál hafa komið upp á yfirborðið og einboðið að þau verði rannsökuð gaumgæfilega af þar til bærum yfirvöldum“. 

Jákvætt sé að stjórn fyrirtækisins hafi lýst því yfir og hafist handa „með afdráttarlausum aðgerðum að endurvinna traust“.

„Viðbrögð þurfa að vera í samræmi við alvarleika hinna meintu brota og fyrirtækið  þarf að leggja spil sín á borðið gagnvart þeim eftirlitsaðilum sem í hlut eiga. Það eru heildarhagsmunir okkar allra að þessi mál upplýsist fljótt og að orðspor þjóðarinnar og atvinnulífs á Íslandi, innanlands sem utan, skaðist sem minnst vegna þeirra,“ segir í yfirlýsingu SA.

Leiða þurfi  í ljós hvort og hverjar af þessum alvarlegu ásökunum eigi við rök að styðjast, en reynist svo vera „þá þarf að senda skýr skilaboð um að háttsemi af þessu tagi verði ekki liðin, hvorki í atvinnulífinu hér á landi né annars staðar þar sem íslensk fyrirtæki hafa starfsemi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK