Dregur úr afgangi á viðskiptajöfnuði

mbl.is/Kristinn Magnússon

63 milljarða króna afgangur var á viðskiptajöfnuði við útlönd á þriðja ársfjórðungi samanborið við 73,8 ma.kr. afgang á sama ársfjórðungi árið áður.

Halli á vöruskiptajöfnuði var 45,9 ma. kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 101,3 ma. kr. Frumþáttatekjur skiluðu 13,4 ma. kr. afgangi en rekstrarframlög 5,9 ma. kr. halla (sjá töflu).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2019 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.870 ma. kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.156 ma. kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 714 ma. kr. eða 24,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 91 ma. kr. eða 3,1% af VLF á fjórðungnum. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 115 ma. kr. á fjórðungnum og munar þar mest um kaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum sem námu um 80 ma.kr. Erlendar eignir jukust í heildina um 74 ma. kr. vegna fjármagnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 40 ma. kr. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 6 ma. kr. Það skýrist aðallega af 4% hækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog. Breytingar á erlendum verðbréfamörkuðum voru litlar á ársfjórðungnum eða rétt um 0,1% lækkun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK