Guðrún skipuð skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu

Guðrún Ögmundsdóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu …
Guðrún Ögmundsdóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Guðrúnu Ögmundsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu til fimm ára, frá 2. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Guðrún hefur starfað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2011. Þar hefur hún verið leiðandi sérfræðingur á skrifstofu stjórnunar og umbóta og stýrt verkefnum í tengslum við þróun stafrænnar þjónustu og rekstur stofnana ríkisins. Þá var hún formaður verkefnisstjórnar um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðarlána.

Síðastliðið ár hefur Guðrún verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Guðrún var áður ráðgjafi hjá Capacent, fjárfestatengill hjá Landic Property hf., og sérfræðingur hjá Kaupþingi banka hf. Þar áður starfaði hún sem hagfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins frá 2002 til 2005.

Guðrún er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School í London.

Skrifstofa rekstrar og innri þjónustu annast rekstur, mannauðsmál og fjármál ráðuneytisins. Skrifstofan hefur umsjón með stefnumótun og fjárveitingum vegna málaflokka sem ráðuneytið ber ábyrgð á auk rekstrarlegs eftirlits með stofnunum ráðuneytisins.

Alls bárust 25 umsóknir um stöðuna sem var auglýst 28. ágúst síðastliðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK