Vöruviðskiptin óhagstæð um 3,1 milljarð

Samkvæmt bráðabirgðatölum nam verðmæti vöruútflutnings 52,1 milljarði króna í nóvember og verðmæti vöruinnflutnings 55,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í nóvember voru því óhagstæð um 3,1 milljarð króna.

Í nóvember 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 18,8 milljarða króna á gengi hvors árs. Án skipa og flugvéla var vöruviðskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 1,8 milljarða króna.

Í nóvember 2019 var verðmæti vöruútflutnings 1,7 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 3,1% á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru með iðnaðarvörur en á móti koma aukin viðskipti með landbúnaðarvörur.

Verðmæti vöruinnflutnings í nóvember 2019 var 17,4 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 23,9% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í viðskiptum með hrá- og rekstrarvörur og eldsneyti.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar, segir á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK