Stærsta húsfélag landsins stofnað á Hlíðarenda

Framkvæmdir hófust á Hlíðarfæti í júní 2018. Sala íbúða er …
Framkvæmdir hófust á Hlíðarfæti í júní 2018. Sala íbúða er hafin og kauptilboð eru komin í tæplega helming þeirra 120 eigna sem komnar eru í sölu.

Stærsta einstaka húsfélag landsins, með flestum íbúðum/einingum, hefur verið stofnað af fyrirtækinu Eignaumsjón hf. fyrir framkvæmdafélagið Hlíðarfót ehf. Hlíðarfótur er með 191 íbúð í smíðum í 11 samtengdum byggingum á F-reit á Hlíðarenda undir merkinu 102reykjavik.is. Í tilkynningu frá Eignaumsjón segir að tilgangur húsfélagsins sé að annast rekstur sameignar fjöleignarhússins á F-reitnum og verður það rekið í deildaskiptu heildarfélagi sem nær til allra 10 matshluta hússins, þar á meðal stigaganga, ytra byrðis hússins, sameiginlegrar bílageymslu og lóðar. „Við teljum það mikinn kost að selja og afhenda nýjum eigendum íbúðirnar með húsfélagsmálin í föstum skorðum frá byrjun,“ segir
Sigurður Lárus Hólm, framkvæmdastjóri Hlíðarfótar, í tilkynningunni.

Fjármál, fundir og fleira

Þjónusta Eignaumsjónar við húsfélagið felur í sér hefðbundna fjármála-, funda- og rekstrarþjónustu ásamt húsumsjón, sem er nýleg viðbótarþjónusta hjá Eignaumsjón fyrir rekstrar- og húsfélög. Hún felst í reglubundnu eftirliti með umhirðu og ástandi sameignar –
innanhúss sem utan.

Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið sé með um 70% hlutdeild á markaðnum. Það hafi verið stofnað árið 2001 og starfi um allt land. Hann segir að sú breyting hafi orðið á starfsemi Eignaumsjónar fyrr á þessu ári að félagið hafi tekið við rekstri Húsastoðar, sem veiti svipaða þjónustu. „Það eru meira en 500 hús- og rekstrarfélög með hátt í 13 þúsund íbúðum/eignum í daglegri þjónustu hjá skrifstofu félaganna tveggja á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík,“ segir Daníel. „Umsjón með húsfélögum um íbúðarhúsnæði er um 80% af okkar starfsemi en um 20% starfseminnar snúa að atvinnuhúsnæði.“

Daníel Árnason framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.
Daníel Árnason framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Ljósmynd / Kristinn Ingvarsson

Efstaleitið og Skuggahverfið

Meðal annarra eigna sem félagið er með í viðskiptum eru ný fjölbýlishús, eins og þau sem eru á Efstaleitisreitnum, í Skuggahverfinu og á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þá hafi íbúðafélagið Bjarg nýverið gert samkomulag við Eignaumsjón um að hafa umsjón með þeim íbúafélögum sem í þeirra húsum verða starfrækt. „Áhersla okkar til framtíðar er að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með góðri þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggjast á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum,“ segir Daníel en 23 starfsmenn starfa nú hjá félaginu, auk fjölda verktaka sem vinna hlutastörf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK