Eimskip selur gámaskipin Goðafoss og Laxfoss

Gámar um borð í Goðafossi.
Gámar um borð í Goðafossi. Ljósmynd/Eimskip

Eimskip hefur komist að samkomulagi um sölu á tveimur gámaskipum félagsins fyrir 3,9 milljónir dollara (3,5 milljónir evra), sem jafngildir um 480 milljónum kr.. Goðafoss og Laxfoss eru 24 ára gömul, 1.457 gámaeininga skip og hafa verið í rekstri félagsins í tæp 20 ár. Samhliða sölunni hefur verið gert samkomulag við kaupanda um að leigja skipin til baka.

Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. 

Þar segir, að salan sé liður í endurnýjun skipaflota Eimskip en félagið er nú með tvö 2.150 gámaeininga skip í smíðum í Kína.

„Gert er ráð fyrir að Goðafoss og Laxfoss muni áfram verða í þjónustu á rauðu leiðinni, til og frá Skandinavíu, allt fram að afhendingu nýju skipanna og væntanlegt samstarf við grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line hefst sem er áætlað að verði öðrum ársfjórðungi 2020. Salan mun því ekki hafa í för með sér breytingar á þjónustu til viðskiptavina eða siglingakerfi félagsins. 

Afhending á skipunum til kaupanda mun eiga sér stað í byrjun næsta árs. Þar sem bókfært verð skipanna er hærra en sem nemur söluverði mun Eimskip færa um 1,2 milljónir evra í virðisrýrnun í gegnum afskriftir á fjórða ársfjórðungi 2019,“ segir Eimskip í tilkynningu.

Tekið er fram, að kaupin séu háð hefðbundnum fyrirvörum um kaup og sölu skipa.

„Eins og áður hefur verið tilkynnt hefur Eimskip komist að samkomulagi um að selja þrjú af sex frystiskipum félagsins í Noregi ásamt því að leigja eitt þeirra til baka. Þar með hefur Eimskip selt eldri skip fyrirtækisins sem mun lækka meðalaldur eigin flota töluvert,“ segir félagið ennfremur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK