10 milljarðar fyrir Icelandair Hotels

mbl.is/Skapti

Icelandair Group segir að þau skilyrði sem samið hafi verið um vegna sölu á Icelandair Hotels hafi nú að mestu verið uppfyllt. Gert sé ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum í lok febrúar 2020 en ekki í árslok 2019 eins og upphaflega hafði verið stefnt að. Heildargreiðslur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 milljarður króna (84 milljónir dala).

Fram kemur í tilkynningu, að 13. júlí hafi stjórn Icelandair Group skrifað undir samning við dótturfélag Berjaya Land Berhad um kaup á 75% hlut í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum.

„Eitt af skilyrðum kaupanna var endurfjármögnun hótelfélagsins. Stjórn Icelandair Hotels skrifaði í dag undir samning við Arion Banka um 8 milljarða króna lán (65 milljónir bandaríkjadala) þess efnis. Berjaya hefur nú þegar greitt Icelandair Group um 1,8 milljarð króna (15 milljónir bandaríkjadala) eða um það bil 30% af kaupverði félagsins. Dagsetning lokagreiðslu verður 28. febrúar 2020, en þessi tveggja mánaða seinkun kemur til vegna gjaldeyrishafta í Malasíu. Kaupandi hefur þegar lagt fram staðfestingu á fjármögnun eftirstöðva kaupverðsins og samþykkt að greiða 6% ársvexti af þeim. Komi til þess að eftirstöðvarnar verði ekki greiddar er samkomulag um vanefndagreiðslu að fjárhæð um 1,2 milljarðar króna (10 milljónir bandaríkjadala) af hálfu kaupanda af því sem þegar hefur verið greitt og getur Icelandair Group þá rift kaupunum,“ segir félagið.

Sem fyrr segir, þá eru heildargreiðslur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 milljarður króna. Þá hafi 1,8 milljarður króna (15 milljónir Bandaríkjadala) þegar verið greiddur, um 3,4 milljarðar króna (29 milljónir Bandaríkjadala) verða nú greiddir í kjölfar endurfjármögnunar Icelandair Hotels og lokagreiðsla að fjárhæð um 4,9 milljarðar (40 milljónir bandaríkjadala) verður greidd þann 28. febrúar 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK