Taka við öllum flutningum FedEx og TNT

Icelandair Cargo mun annast alla flutninga fyrir FedEx og TNT …
Icelandair Cargo mun annast alla flutninga fyrir FedEx og TNT til landsins.

Icelandair Cargo hefur gert samning við FedEx og TNT um flutninga á öllum þeirra vörum til og frá Íslandi. Samningurinn, sem er til þriggja ára, tekur gildi í byrjun árs 2020. FedEx og TNT hafa sameinað starfsemi sína eftir kaup FedEx á TNT og stefna að því að auka umsvif sín hér á landi í samstarfi við Icelandair Cargo. FedEx er eitt af stærstu flutningafyrirtækjum í heimi, með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu.

Vegna samningsins verður nokkur breyting á flugáætlun Icelandair Cargo til …
Vegna samningsins verður nokkur breyting á flugáætlun Icelandair Cargo til Evrópu.

Vegna samningsins verður nokkur breyting á flugáætlun Icelandair Cargo til Evrópu. Flug til Liege í Belgíu mun aukast verulega í ljósi þess að Liege er einn af aðalflugvöllum FedEx og TNT í Evrópu. Fraktvélar Icelandair Cargo munu fljúga sjö sinnum í viku til Liege í Belgíu og þrisvar sinnum í viku til East Midlands í Bretlandi. Þá býður félagið eftir sem áður upp á fraktþjónustu til allra áfangastaða Icelandair sem eru um 40 talsins.

„Þess ber að geta að mikil bylting varð í starfsemi Icelandair Cargo eftir að Icelandair tók í notkun Boeing 767-breiðþotur þar sem þær vélar taka umtalsvert magn af frakt samhliða farþegaflugi. Nú eru fjórar slíkar í flota Icelandair. Icelandair Cargo áætlar að flytja tæplega 50 þúsund tonn af frakt á árinu sem er að ljúka, en af því fer um 60% með farþegavélum Icelandair,“ segir í fréttatilkynningu.

Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.

„Samningurinn við FedEx og TNT er einn sá stærsti sem Icelandair Cargo hefur gert. Aukið framboð á fraktþjónustu til meginlands Evrópu felur í sér aukin tækifæri fyrir viðskiptavini Icelandair Cargo, t.d. íslenska útflytjendur á sjávarafurðum. Þeirra markmið er að koma vörum sínum ferskum á markað í Evrópu með skjótum og öruggum hætti.

Með yfirvofandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu felast tækifæri í því að auka flug til meginlands Evrópu, þar sem stór hluti af þeim sjávarafurðum sem flogið var með til Bretlands fór samdægurs áfram til meginlands Evrópu. Aukin tíðni til Belgíu tryggir útflytjendum áfram örugga leið á mikilvæga markaði í Evrópu. Samhliða því að efla fraktþjónustu til og frá meginlandi Evrópu verða umsvif Icelandair Cargo áfram mikil í flutningum til og frá Norður Ameríku,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK