Starfsmönnum Valitors fækkar um 60

Valitor.
Valitor. Ljósmynd/Aðsend

Í framhaldi af samþykkt stjórnarfundar Valitors 30. des sl. hefur verið hafist handa við endurskipulagningu á félaginu til að styrkja kjarnastarfsemi þess og snúa við taprekstri. Breytingarnar valda því að starfsfólki Valitors fækkar á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins. Ráðgert er að með þeim aðgerðum sem nú er ráðist í fækki starfsfólki um nálægt 60 manns. Jafnframt er gripið til almennra hagræðingaraðgerða til að treysta reksturinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fækkar úr nærri 390 í um 330

Þar segir jafnframt, að með þeim aðgerðum sem nú sé ráðist í fækki starfsfólki félagsins um nálægt 60, úr nærri 390 starfsmönnum í um 330. Þar með eru taldar stöður sem hafa losnað hjá félaginu og ekki er ráðið í að nýju. Breytingarnar taka til allra starfsstöðva fyrirtækisins.

„Alls er um að ræða 9 uppsagnir á Íslandi og hafa þær þegar tekið gildi. Aðrar mannabreytingar varða starfsstöðvar Valitor í Danmörku og Bretlandi. Á ofanverðu síðasta ári var starfsfólki Valitor fækkað um nærri 30 manns. Þannig nemur fækkun síðustu 6 mánuðina næstum 90 starfsmönnum. Samhliða mannaflabreytingum er hagrætt víða á öðrum sviðum starfseminnar, m.a. er verið að endursemja við birgja, draga saman í húsnæði og fækka vörum í þróun. Valitor er í söluferli þar sem fyrirhugað er að selja félagið í heild eða að hluta,“ segir í tilkynningunni. 

Róttækar og erfiðar breytingar

„Markmiðið er skýrt, við ætlum að snúa við taprekstri og tryggja félaginu sterkan rekstrargrundvöll til framtíðar. Það er aldrei góður tími til að segja upp starfsfólki og sjá á bak hæfum samstarfsmönnum. Hins vegar leggjum við áherslu á að hefja nýtt ár með gjörbreyttum rekstrarforsendum. Með þessum aðgerðum ætlum við okkur að fara úr tapi yfir í rekstrarhagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði (e. EBITDA). Við erum að styrkja og þétta rekstur og kjarnaþjónustu félagsins á okkar mörkuðum og þar lítum við ekki síst til mikilvægis heimamarkaðsins þar sem við stöndum traustum fótum. Eftir róttækar og erfiðar breytingar horfum við bjartari augum fram á veg og munum sækja fram á ný. Þar vil ég sérstaklega benda á sóknarfæri varðandi samvinnu við öflug erlend fjártæknifyrirtæki á borð við Stripe, Klarna og Paymentsense þar sem samstarfslíkan okkar hefur sannað gildi sitt,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors, í tilkynningunni. 

Þá segir, að með framangreindum skipulagsbreytingum muni draga úr fjárfestingarþörf og rekstrarkostnaði sem aftur hafi jákvæð áhrif á afkomu félagsins. Valitor verði eftir sem áður fjárhagslega sterkt, alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu á sviði færsluhirðingar,  greiðslugátta og útgáfu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK