Tæknifyrirtækið Sensa hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu Hux ráðgjöf og munu allir starfsmenn félagsins bætast við sem starfsmenn Sensa, en hjá Sensa starfa í dag 120 manns.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að með sameiningunni muni nást mikil styrking á sviði Microsoft lausna, rafrænna ferla, sjálfvirknivæðingar og forritarateyma.
Starfsemi Sensa spannar meðal annars rekstur og hýsingu skýjalausna til sérfræðiþjónustu og ráðgjafar.