Facebook fjölgar starfsfólki um fjórðung í London

Stærsta skrifstofa Facebook utan Bandaríkjanna er í London.
Stærsta skrifstofa Facebook utan Bandaríkjanna er í London. AFP

Framkvæmdastjóri Facebook, Sheryl Sandberg, segir að yfir eitt þúsund ný störf verði til hjá samfélagsmiðlinum í London í ár. Er það gert til þess að bæta öryggi á miðlinum með stuðningi frá gervigreind.

Eftir fjölgunina verða yfir fjögur þúsund starfsmenn Facebook á skrifstofunni í London. Sandberg segir að Bretland sé leiðandi í bæði í frumkvöðlastarfsemi sem og hugviti. „Þess vegna er ég mjög spennt yfir þeim áætlunum okkar að ráða eitt þúsund manns til viðbótar í London í ár,“ segir hún. 

Stór hluti starfanna tengist þróun gervigreindar og hvernig er hægt að mæta þeim áskorunum sem fylgja opnu neti. Með þeim verði hægt að finna og fjarlægja skaðlegt efni fyrr en nú er. 

Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, fagnaði þessu framtaki Facebook og segir að í Bretlandi séu að verða til ný fyrirtæki sem starfa meðal annars við gervigreind sem heilla eldri stór tæknifyrirtæki eins og Facebook. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK