Krónan plastpokalaus í árslok

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Frá því Krónan tók úr umferð alla smápoka sem hafa fengist gefins við kassa og í ávaxta- og grænmetisdeildum í byrjun júní hefur pokanotkunin dregist verulega saman.

Viðskiptavinum býðst þess í stað að nota fjölnota poka undir ávexti og grænmeti eða sleppa pokum eftir því sem við á. Á þessu rúma hálfa ári hefur sparast mikið plast eða 16.860 rúllur sem gera 3.372.000 poka. Krónan stefnir á að vera alveg plastpokalaus í lok árs.

Pokarnir ganga undir ýmsum nöfnum svo sem hnútapokar, nískupokar eða skrjáfpokar og voru vinsælir undir ávextina eða grænmetið sem og smádót, samkvæmt tilkynningu.

Krónan Garðabæ.
Krónan Garðabæ.

Löggjöf um bann við einnota plastpokum tók gildi 1. júlí 2019 og þurftu verslanir þá að rukka fyrir smápoka sem áður voru gefins í flestum verslunum. Krónan hins vegar tók þá ákvörðun að fjarlægja pokana frekar en að rukka fyrir þá sem lið í þeirri samfélagslegu ábyrgð að minnka plastnotkun. Krónan skipti jafnframt út hefðbundnum plastburðarpokum fyrir poka úr sykurreyr fyrr á árinu. Þegar birgðir Krónunnar af sykurreyrspokunum klárast sem áætlað er að verði í haust verða engir burðarpokar aðrir í verslunum Krónunnar en fjölnota pokar og pappírspokar.

„Við gerum okkur grein fyrir að í krafti stærðar okkar getum við haft áhrif til góðs og höfum því leitað leiða til að draga úr notkun plastpoka í verslunum okkar. Þetta skref, að hætta með skrjáfpokana, áður en löggjöfin tók gildi, var ekki einfalt því við þurftum öll, starfsmenn og viðskiptavinir, að aðlaga okkur því breytta umhverfi en við vildum stíga fram með góðu fordæmi. Árangurinn af þessu er frábær, það munar um fækkun um yfir þrjár milljónir plastpoka, bara með þessari einu aðgerð. Markmið okkar árið 2020 er svo að hætta alveg með burðarpoka úr plasti því þótt sykurreyrspokarnir séu vissulega skárri kostur  þá finnst okkur það ekki duga til og munum því, þegar birgðirnar okkar klárast, hætta alfarið með þá,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK