Bréf Icelandair hækka um 9,4%

Bréf Icelandair hafa hækkað um 9,4% í verði það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Frá áramótum hafa bréf félagsins hækkað um 19,21%.

Síðustu viðskipti með bréf félagsins voru á genginu 9 en lítil viðskipti eru á bak við hækkunina í morgun.

Icelandair birti uppgjör síðasta árs í gær og nam tap félagsins 7,1 millj­arði króna og jókst úr 6,8 millj­arða tapi árið á und­an. Icelandair hefur því tapað tæpum 14 milljörðum króna á tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK