Lilja nýr framkvæmdastjóri SagaNatura

Lilja Kjalarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri SagaNatura. Hún er með doktorspróf …
Lilja Kjalarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri SagaNatura. Hún er með doktorspróf í líflæknisvísindum og hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 2018. Ljósmynd/Aðsend

Lilja Kjalarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura ehf., en hún tekur við starfinu af Sjöfn Sigurgísladóttur, sem er einn af stofnendum félagsins. Lilja hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 2018.

Samkvæmt tilkynningu frá SagaNatura tekur Sjöfn nú sæti í stjórn félagsins og mun auk þess leiða verkefni sem varða framþróun félagsins á Íslandi og erlendis í samstarfi við stjórn og framkvæmdastjóra.

Lilja lauk doktorsgráðu í líflæknisvísindum (e. biomedicine) frá UT Southwestern í Dallas árið 2011, en áður hafði hún klárað grunnnám í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Að loknu doktorsnámi starfaði hún í þrjú ár við rannsóknir við Duke University. Eftir komuna til Íslands árið 2014 leiddi hún rannsóknir og þróun hjá líftæknifyrirtækinu Genís. Þar kom hún einnig að uppskölun framleiðslu og markaðssetningu.

Lilja tók við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra SagaNatura í byrjun árs 2018 og hefur unnið þétt með Sjöfn að uppbyggingu félagsins á síðastliðnum tveimur árum. Lilja hefur einnig sinnt rannsóknum hjá Landspítalanum og kennslu við Háskólann í Reykjavík. Lilja er gift Svavari Sigursteinssyni, einkaþjálfara og ljósmyndara, og eiga þau tvö börn.  

Í tilkynningu SagaNatura er haft eftir fráfarandi framkvæmdastjóra að fyrirtækið hafi verið í örum vexti að undanförnu og hafi náð „miklum árangri“ í sölu og uppskölun framleiðslunnar.  „Það er mikill styrkleiki fyrir SagaNatura að fá kraftmikinn og reyndan stjórnanda og leiðtoga til að stýra rekstrinum áfram veginn,“ segir Sjöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK