Auka hlutafé um tvo milljarða

Bjarni K. Þorvarðarson, forstjóri Coripharma, segir í fréttatilkynningu: „Örugg fjármögnun …
Bjarni K. Þorvarðarson, forstjóri Coripharma, segir í fréttatilkynningu: „Örugg fjármögnun er gríðarlega mikilvæg til að tryggja öfluga lyfjaþróun og uppbyggingarstarf í lyfjaverksmiðjunni. Þróun á nýjum samheitalyfjum er kostnaðarsöm en þessi fjármögnun gerir okkur kleift að halda ótrauð áfram með markmið okkar að koma þrettán nýjum samheitalyfjum á markað og að verksmiðjan verði komin í full afköst innan þriggja ára.“ Ljósmynd/Aðsend

Coripharma hefur lokið rúmlega tveggja milljarða króna hlutafjáraukningu sem mun styrkja lyfjaþróun félagsins. Coripharma stefnir á markaðssetningu þrettán nýrra samheitalyfja á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Tuttugu nýir fjárfestar koma nú að félaginu, auk eldri hluthafa Coripharma sem standa að baki um þriðjungs hins nýja hlutafjár. Fyrirtækjaráðgjöf Kviku var ráðgjafi Coripharma í viðskiptunum.

„Coripharma er íslenskt lyfjafyrirtæki í eigu fyrrverandi starfsmanna Actavis og fjárfesta. Frá því að félagið hóf starfsemi sína árið 2018 hefur það keypt alla lyfjaframleiðslu og lyfjaþróun Actavis á Íslandi. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf. 

Áætlað er að fyrsta samheitalyfið undir merkjum Coripharma komi á markað um mitt næsta ár. Félagið gerði nýverið samninga við tvö erlend lyfjafyrirtæki: annars vegar Midas Pharma um samvinnu við framleiðslu og markaðssetningu á lyfjum til þriðja aðila, og hins vegar STADA, eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims, um pökkun á 700 milljónum taflna af lyfjum árlega í þrjú ár. Í kjölfarið fjölgaði störfum hjá fyrirtækinu, en hjá Coripharma vinna í dag 110 manns. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að í lok ársins verði starfsmenn orðnir um 140 talsins,“ samkvæmt fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK