Öllum Vínbúðunum verður lokað

Það stefnir í verkfall hjá starfsfólki Vínbúðanna.
Það stefnir í verkfall hjá starfsfólki Vínbúðanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur gert birgjum fyrirtækisins viðvart um að mikil röskun geti orðið á starfsemi Vínbúðanna í þessum mánuði og þeim næsta. Náist ekki samningar milli BSRB og ríkisins fyrir 9. mars skellur á verkfall sem m.a. mun ná til þeirra starfsmanna ÁTVR sem eru félagsmenn í Sameyki — stéttarfélagi í almannaþjónustu.

Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR munu aðgerðirnar leiða til þess að öllum verslunum fyrirtækisins verður lokað ásamt dreifingarmiðstöð sem rekin er á þess vegum.

Um er að ræða eftirfarandi daga í mars og apríl:

9.-10. mars

17.-18. mars

24. og 26. mars

31. mars

1. apríl

15.-25. apríl

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK