Bréf Norwegian hrynja við opnun markaða

Norwegian Air Shuttle hefur ekki átt sjö dagana sæla í …
Norwegian Air Shuttle hefur ekki átt sjö dagana sæla í norsku kauphöllinni að undanförnu. Ljósmynd/Norwegian

Það varð strax ljóst við opnun Kauphallarinnar í Ósló hversu mikil áhrif og víðtæk ferðabann það, sem forseti Bandaríkjanna hefur lagt á Evrópu að Bretlandi undanskildu, mun hafa á flugmarkaðinn.

Bréf Norwegian Air Shuttle sem hafa verið í frjálsu falli síðustu daga féllu um 17% þegar viðskipti hófust. Hafa bréf félagsins lækkað enn og nemur fall bréfanna nú rúmum 20%. Um áramót var gengi bréfanna ríflega 40. Það þýðir að markaðsvirði félagsins hefur rýrnað um nærri 82% á tæpum tveimur og hálfum mánuði.

Nýverið greindi félagið frá því að það hygðist fella niður 3.000 flug á komandi vikum og samsvaraði það um 15% samdrætti í áætlunum þess. Nú er viðbúið að enn fleiri flug verði felld niður með tilheyrandi áhrifum á rekstur þess.

Sem stendur er markaðsverð félagsins aðeins 0,3 af bókfærðu eigin fé þess.

Fréttin var uppfærð kl. 9:31.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK