Horfur næstu mánaða óljósar

„Það er óhætt að segja að mikil óvissa ríkir um …
„Það er óhætt að segja að mikil óvissa ríkir um stöðu íbúðamarkaðar um þessar mundir. Misvísandi gögn vekja upp spurningar. Mikið virðist vera byggt án þess að sala aukist,“ segir í Hagsjá bankans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,5% milli mánaða í febrúar. Gögn benda til þess að framboð nýrra íbúða sé talsvert um þessar mundir en útbreiðsla COVID-19 gæti dregið úr viðskiptum á allra næstu mánuðum, þótt staðan sé afar óljós.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. 

Í febrúar hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,5% milli mánaða. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,5% og verð á sérbýli um 0,7%. Hækkunin er mjög áþekk því sem mældist milli mánaða í janúar.

Meira framboð nýrra íbúða

Vísbendingar eru um að framboð nýrra íbúða sé meira nú en nokkru sinni fyrr. Í fyrra jókst íbúðafjárfesting um 31% milli ára samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands, sem er mun meiri vöxtur en hefur sést á síðustu árum. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár bættust 3.299 nýjar íbúðir við húsnæðisstofn landsins í fyrra sem er einnig mjög mikil aukning, eða sú mesta sem hefur sést á stöku ári síðan 2008 þegar 3.683 íbúðir bættust við húsnæðisstofn landsins, að því er bankinn segir. 

Þetta er vísbending um það að framboð nýbygginga sé talsvert og raunar ekki verið meira í áraraðir. Í þessu samhengi er þó vert að nefna að nýbyggingar voru einungis 17% af öllum seldum íbúðum í fjölbýli í fyrra á höfuðborgarsvæðinu og var hlutfallið óbreytt frá fyrra ári, þrátt fyrir umtalsverða aukningu í nýjum íbúðum á markaði, að því er segir í Hagsjá bankans.

Gögn um framboð misvísandi

„Það er mikilvægt að hafa þó í huga að gögn um framboð íbúðarhúsnæðis virðast vera misvísandi. Samkvæmt upplýsingum um veltu í byggingariðnaði út frá virðisaukaskattsskýrslum má sjá mun hægari vöxt í greininni, sem er á skjön við gögn um íbúðafjárfestingu.

Það er óhætt að segja að mikil óvissa ríkir um stöðu íbúðamarkaðar um þessar mundir. Misvísandi gögn vekja spurningar. Mikið virðist vera byggt án þess að sala aukist. Er verulegt magn af nýjum íbúðum að streyma inn á markaðinn sem seljast illa, eða er um tímatöf í gögnum að ræða? Á meðan upplýsingar um framboð íbúðarhúsnæðis eru óljósar verður erfitt að meta stöðuna með óyggjandi hætti.“

Nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK