Vilja eiga allt að fimm mánaða vörubirgðir

Birgðastaða íslenskra heildsasla er sögð góð en þeir vilja samt …
Birgðastaða íslenskra heildsasla er sögð góð en þeir vilja samt auka vörubirgðir vegna ástandsins. Myndin er af lager Ó. Johnson & Kaaber. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stærstu heildsölur landsins horfa nú til þess að eiga fjögurra til fimm mánaða birgðir af helstu vörum fyrir heimilin í landinu, í stað tveggja til þriggja mánaða birgða áður.

Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaaber, segir að fyrirtækið hafi brugðist við aukinni spurn eftir helstu vörum og aukið lager sinn. Hann ítrekar að ekkert hökt sé á framboði vara hjá birgjum fyrirtækisins og ekkert bendi til vöruskorts neins staðar frá.

Spurður að því hvaða vörur hafi selst hraðast nefnir hann t.d. Palmolive-sápur og tilbúna rétti frá Findus.

Ari Fenger forstjóri 1912, sem rekur heildsöluna Nathan og Olsen, Ekruna og Emmessís, segir í Morgunblaðinu í dag að birgðastaðan sé góð. „Við höfum verið með þriggja mánaða birgðir en í ljósi mikillar sölu höfum við verið að bæta í og reynt að auka aðeins birgðir miðað við eðlilega stöðu. Við horfum þá til 4-5 mánaða birgða.“

Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir, fjármálastjóri heildsölunnar Garra, sem þjónustar veitingamarkaðinn, hótel, mötuneyti og skólaeldhús, segir að fyrirtækið sé vel birgt enda sé önnur staða hjá þeim en heildsölum sem sinna dagvörumarkaði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK