Samiðn hvetur til hraðari innviðauppbyggingar

Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Samiðnar.
Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. mbl.is/Golli

Á meðan Samiðn fagnar þeim tillögum sem eru fyrirliggjandi varðandi endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu manna á byggingarstað íbúðar- og frístundahúsnæðis skorar félagið á stjórnvöld að hraða innviðauppbyggingu og setja í gang mannaflsfrekar framkvæmdir eins fljótt og auðið er. Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem er samband iðnfélaga.

Félagið segir þær tillögur stjórnvalda m endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu manna á byggingarstað íbúðar- og frístundahúsnæðis, sem og viðhalds ökutækja vera atvinnuskapandi og mikilvægar á þeim tímum sem framundan eru. Samiðn telur þó mikilvægt að umrædd endurgreiðsla á virðisaukaskatti taki einnig til framkvæmda á vegum sveitarfélaga.

Verulega skort á framkvæmdir hjá hinu opinbera

„Á tímum samdráttar er mikilvægt að stjórnvöld horfi til verkefna sem stuðla að atvinnusköpun sem flestra. Ljóst er að mörg verkefni koma þar til greina, bæði á sviði samgöngumála og mannvirkjagerðar. Nú er uppi fordæmalaust ástand í samfélaginu með mikilli ágjöf á atvinnulífið og nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist hratt við. Hagvaxtahorfur hafa versnað til muna og telur Samiðn mikilvægt að framkvæmdir hefjist þegar í stað,“ segir í ályktuninni.

„Verulega hefur skort á viðhaldsframkvæmdir hjá hinu opinbera síðustu misserin og nú er lag að bregðast við uppsafnaðri þörf þar. Brýnt er að halda hjólum atvinnulífsins gangandi og stuðla að því að greiðslur úr ríkissjóði skili mikilvægum virðisaukandi verkefnum til samfélagsins. Það er á svona tímum sem reynir á stjórnvöld að styðja við af fullu afli og ljóst er að enginn hörgull er af verðugum verkefnum sem ráðast þarf í.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK