Horft verði framhjá kröfum um ávöxtun og arð

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum mbl.is/Kristinn

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að Bankasýsla ríkisins horfi framhjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á þessu ári og að þessum skilaboðum verði komið áfram til stjórna fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins.

Þetta er gert í ljósi aðstæðna vegna kórónuveirunnar, m.a. viðbrögðum markaðsaðila undanfarið og með vísan til ákvæða eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, að því er segir í tilkynningu.

„Í eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki sem Bankasýsla ríkisins hefur umsjón með, kemur fram að fjármálafyrirtækjunum ber að hámarka langtímavirði fyrir ríkissjóð að teknu tilliti til áhættu. Enn fremur segir að tryggja þurfi að þau skili viðunandi arði til hluthafa að teknu tilliti til markaðsaðstæðna, auk þess að arðsemi skuli byggjast á varkárum langtímasjónarmiðum en ekki skammvinnum ávinningi. Loks skal starfsemi fjármálafyrirtækjanna byggjast á markvissri stefnu og hagkvæmum rekstri sem skilar ávinningi til viðskiptavina og samfélagsins til lengri tíma,“ segir í tilkynningunni.

Á grunni þessarar eigandastefnu setur Bankasýslan fram, eftir atvikum, formlega eða óformlega arðsemiskröfu á eigin fé þessara fyrirtækja. Í samræmi við tilmælin gera stjórnir þessara fjármálafyrirtækja áætlanir um arðgreiðslur til lengri tíma og árlega tillögur um arðgreiðslur sem lagðar eru fyrir hluthafafundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK