Jákvæð afkoma Isavia á síðasta ári

Keflavíkurflugvöllur er tómlegur á meðan heimsfaraldur kórónuveirunnar gengur yfir.
Keflavíkurflugvöllur er tómlegur á meðan heimsfaraldur kórónuveirunnar gengur yfir. mbl.is/Hallur Már

Þrátt fyrir töluverða fækkun ferðamanna á síðasta ári var afkoma Isavia samstæðunnar jákvæð um 1,2 milljarða króna eftir skatta, sem er lækkun um 3,1 milljarð króna frá fyrra ári. Ef tekið er tillit til niðurfærslu á viðskiptakröfum vegna falls Wow air nemur lækkunin milli ára um 1,2 milljörðum króna. Tekjur ársins lækkuðu um 3,3 milljarða, sem er um 8% samdráttur á milli ára. Handbært fé nam um 9,2 milljörðum króna í árslok 2019.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Farþegum um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 26% á milli ára, en flugvélum sem fóru um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið fækkaði um 7,5 prósent. Þá fækkaði innanlandsfarþegum um 11,4%.

„Árið 2019 var fyrir margar sakir viðburðaríkt. Wow air féll á fyrri hluta ársins og stuttu síðar voru Boeing 737 MAX-vélar Icelandair kyrrsettar. Allt hafði þetta mikil áhrif á fjölda farþega og þannig á rekstur samstæðu Isavia,“ er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia.

„Nú stöndum við frammi fyrir heimsfaraldri af völdum Covid-19-veikinnar, og það er gríðarmikil óvissa með framhaldið. Það eina sem við vitum er að áhrifin verða mikil. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk en það er ljóst að við, eins og önnur fyrirtæki, þurfum að bretta upp ermarnar til að komast heil í gegnum þessa erfiðleika,“ bætir Sveinbjörn við.

Á aðalfundi var kosin stjórn félagsins:

Aðalstjórn: Orri Hauksson, Eva Pandora Baldursdóttir, Matthías Páll Imsland, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Valdimar Halldórsson.

Varastjórn: Sigrún Traustadóttir, Hreiðar Eiríksson, Ingveldur Sæmundsdóttir, Óskar Þórmundsson og Þorbjörg Eva Erlendsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK