Verulegur samdráttur á kortaveltu í mars

Þróun kortaveltu í dagvöruverslun varpar ágætu ljósi á kauphegðun heimila …
Þróun kortaveltu í dagvöruverslun varpar ágætu ljósi á kauphegðun heimila í mars, en veltan fer vaxandi alla vikuna og er mest á föstudögum. mbl.is/​Hari

Kortavelta á innlendum kortum dróst jafnt og þétt saman þegar leið á marsmánuð, ef frá eru taldir dagar þar sem tilkynntar voru breyttar reglur tengdar Covid-19-faraldrinum. Eftir að samkomubann var komið á breyttist kortavelta og dróst almennt saman.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Gögn um þróun kortaveltu 1.-28. mars eru fyrsta birting Hagstofu Íslands á tilraunatölfræði.

Þróun kortaveltu í dagvöruverslun varpar ágætu ljósi á kauphegðun heimila í mars, en veltan fer vaxandi alla vikuna og er mest á föstudögum. Veltan dregst verulega saman á sunnudögum og fer svo aftur vaxandi út vikuna. Kortavelta jókst verulega þegar tilkynnt var um breyttar reglur um samkomubann 13. mars, en þann dag var nær tvöfalt meiri velta en á meðaldegi. Eftir að samkomubanni var komið á breyttist kortavelta í dagvöru lítið.

Erlend kortavelta dróst jafnt og þétt saman allan marsmánuð og var í lok mánaðar um 5% þess sem hún var í upphafi hans. Þróun erlendrar kortaveltu varpar ljósi á stöðu og þróun einkennandi greina ferðaþjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK