Segir ákvæði í kjarasamningum sæta furðu

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eins og ítrekað hefur komið fram eiga Landsvirkjun og Rio Tinto nú í viðræðum um þá kröfu Rio Tinto að raforkusamningur vegna álversins í Straumsvík verði endurskoðaður. Landsvirkjun segir það sæta furðu að kjarasamningar Rio Tinto við starfsmenn sína séu háðir skilyrðum um nýja raforkusamninga.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Landsvirkjun vegna fréttar Morgunblaðsins í dag.

Í Morgunblaðinu í dag fara ónafngreindir heimildarmenn blaðsins fram með fullyrðingar sem aldrei hafa komið fram í viðræðum fyrirtækjanna – og fulltrúar Rio Tinto í þeim viðræðum geta staðfest   þ.e. að Rio Tinto íhugi nú að leggja niður starfsemi í Straumsvík í tvö ár og sé jafnframt að íhuga málaferli gegn Landsvirkjun, til að fá raforkusamningi hnekkt,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar sé því enn fremur haldið fram að nýundirritaðir kjarasamningar Rio Tinto við starfsmenn séu háðir því skilyrði að nýir raforkusamningar náist fyrir júlílok. Það sæti auðvitað furðu, ef rétt er, að Rio Tinto hafi skilyrt kjarasamninga við starfsmenn á Íslandi aðgerðum fyrirtækis í eigu íslensku þjóðarinnar sem ekkert hafi með kjarasamningana að gera.

Bent er á að staða fyrirtækja almennt sé erfið um þessar undir. 

Í fréttum af erfiðleikum Rio Tinto og taprekstri undanfarinna ára í Straumsvík er því hins vegar sjaldan haldið á lofti að álverið hér greiddi móðurfélagi sínu 130 milljónir dollara í arð árið 2017. Á þeim tíma var sú arðgreiðsla hærri en samanlagðar skattgreiðslur og allur arður Landsvirkjunar frá upphafi til eiganda síns, íslensku þjóðarinnar,“ segir í yfirlýsingunni.

Ítrekað er að Landsvirkjun fór um miðjan febrúar fram á að trúnaði yrði aflétt af samningnum við Rio Tinto, svo hægt væri að tryggja gagnsæi í umræðum um hann. Rio Tinto hefur ekki enn orðið við því.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK