Fín fasteignasala í mars

Verð á fjölbýli hækkaði í mars en verð á sérbýli lækkaði um 1,8%. Þetta er mesta lækkun sem hefur mælst á milli mánaða í tæp sex ár. Viðskiptum með íbúðarhúsnæði fjölgaði um 5% á milli ára. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem vísar í tölur frá Þjóðskrá Íslands.

„Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 0,1% milli febrúar og mars. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,7% en verð á sérbýli lækkaði um 1,8%. Talsvert flökt getur verið á verðþróun milli einstakra mánaða, sérstaklega á sérbýli, og því ekki óalgengt að það mælist af og til lækkun. Lækkunin nú er þó sú mesta sem hefur mælst milli mánaða síðan í ágúst 2014,“ segir í Hagsjánni. 

Síðustu misseri hefur þróun íbúðaverðs verið með afar rólegum hætti og hækkanir í auknum mæli verið í takt við hækkanir á verðlagi annarra vara, með þeim afleiðingum að raunverðshækkanir eru nú minni en oft áður segir í Hagsjá Landsbankans. 

„Viðskipti með íbúðarhúsnæði voru býsna mörg í mars og bendir ýmislegt til þess að staðan sé nokkuð góð á íbúðamarkaði. Vextir á íbúðalánum hafa víða lækkað og kaupmáttur hefur aukist. Allt frá því í febrúar 2019 hefur 12 mánaða hækkun kaupmáttar launa mælst ofar hækkun raunverðs íbúða. Það er því margt sem bendir til þess að íbúðakaup séu nokkuð hagstæð á þessari stundu. Á móti kemur þó að óvissa er afar mikil,“ segir ennfremur.

Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár var 584 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst í mars og voru viðskipti 5% fleiri en í mars fyrir ári síðan, þegar 557 kaupsamningum var þinglýst.

Það sem af er ári hefur 1.904 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu verið þinglýst sem er 5% aukning miðað við sama tíma í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK