Rekstrarafgangur Kópavogs í fyrra 1,7 milljarðar

Rekstrarafgangur Kópavogs í fyrra nam 1,7 milljörðum.
Rekstrarafgangur Kópavogs í fyrra nam 1,7 milljörðum. mbl.is

Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar var 1,7 milljarður króna árið 2019 en gert hafði verið ráð fyrir 554 milljónum í fjárhagsáætlun. Skýrist þessi mikli munur á því að gjaldfærsla lífeyrissjóðsskuldbindinga var mun lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Þá var uppgert útsvar fyrir árið 2018 hærra en gert var ráð fyrir og uppgjör vegna lóðaúthlutana sömuleiðis, en ekki var sérstakalega áætlað fyrir þeim tekjum. Einnig var verðbólga lægri en áætlað var. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs segir í tilkynningunni að ársreikningurinn beri með sér að rekstur bæjarins sé sterkur. Hann segir myndina sem sé að teiknast upp í ár þó allt aðra, en að staða bæjarins sé þó sterk. „En það liggur fyrir að myndin í ár verður allt önnur og miklu verri vegna áhrifa Covid-19 á reksturinn. Við stöndum frammi fyrir umtalsverðri lækkun tekna og auknum kostnaði meðal annars vegna þess að viðhalds- og endurbótaverkefnum verður flýtt og atvinnuúrræðum fjölgað. Þá munum kostnaður vegna velferðarmála aukast mikið vegna atvinnuleysis. Þess verður þó að geta að Kópavogsbær er betur í stakk búin að mæta þessu áfalli en oft áður þar sem rekstur og efnahagur bæjarins er sterkur en um leið ljóst að kringumstæðurnar kalla á auknar lántökur. Því þarf að endurskoða fjárhagsáætlun ársins 2020,“ er haft eftir honum.

Í fyrra fjárfesti bærinn fyrir 3,1 milljarð, en stærsta einstaka framkvæmdin var bygging húsnæðis fyrir skólahljómsveit Kópavogs. Fóru alls 507 milljónir í þá framkvæmd á árinu, en fram kemur að byggingu hennar hafi svo gott sem lokið í fyrra, þótt vígslan færi fram í ár. Þá var keypt húsnæði fyrir 100 milljónir að Ögurhvarfi 4a undir tónlistarskólann Tónsali og lagfært fyrir um 40 milljónir.

Alls var varið rúmlega 130 milljónum til endurnýjunar og viðhalds leik- og grunnskólalóða. Þá var rúmlega 450 milljónum varið til framkvæmda í skólum bæjarins. Vega þar þyngt framkvæmdir við Kársnesskóla, Kópavogsskóla og Smáraskóla. Lokið var við endurnýjun Kópavogsvallar sem var framkvæmd að andvirði tæplega 300 milljónum.

Gatnaframkvæmdir ýmiskonar og framkvæmdir við hjólreiðastíga voru um 730 milljónir króna. Helstu framkvæmdir voru Vesturvör, Nesvör, Auðbrekkusvæði, Álalind og 201 Smárinn. Auk þess var unnið við Okkar Kópavogur og endurnýjun á gatnalýsingu.

Skuldir sveitarfélagsins voru í árslok 30,6 milljarðar, en skuldahlutfall bæjarins var 102% og lækkaði úr 108% árið áður. Það var hins vegar hæst 242% árið 2010. Alls voru greiddir 7,2 milljarðar í afborganir af lánum, en á móti voru tekin lán að fjárhæð 6,7 milljarðar.

Tekjur bæjarins námu 3,4 milljörðum  fyrir bæði A- og B-hluta, en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 33,7 milljörðum.

Alls voru greiddir 7,2 milljarðar í afborganir lána en á móti voru tekin lán að fjárhæð um 6,7 milljarðar. Rekstrartekjur A-hluta námu 32,9 milljörðum króna en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 32 milljörðum króna. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1,5 milljörðum króna en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að fjárhæð 447 milljónum króna. Veltufé frá rekstri samstæðu var 3,8 milljarðar króna

Laun bæjarins námu 18,2 milljörðum, en á launaskrá voru 2.568 í árslok í 1.968 stöðugildum, að undanskyldum vinnuskóla og vinnuframlagi í nefndum.

Laun og launatengd gjöld bæjarstjórnar, bæjarráðs og bæjarstjóra námu 108 milljónum á árinu 2019 sem er lækkun frá 2018 vegna lækkunar launa bæjarstjóra og bæjarfulltrúa sem átti sér stað árið 2018 en skilar sér að fullu í lækkun rekstrargjalda árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK