Finnur og Guðmundur hætta hjá Högum

Finnur Árnason, fráfarandi forstjóri Haga.
Finnur Árnason, fráfarandi forstjóri Haga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hafa óskað eftir að láta af störfum. Þeir munu áfram starfa hjá fyrirtækinu þangað til ráðið hefur verið í þeirra stað. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Finnur hefur verið forstjóri félagsins í 15 ár, eða frá árinu 2005. Hann hóf störf hjá fyrirtækinu fyrst árið 1998. Guðmundur á einnig langan starfsaldur að baki hjá Bónus, eða um þrjá áratugi.

Haft er eftir Ernu Gísladóttur, stjórnarformanni Haga, að stjórnin vilji þakka þeim fyrir mikilvægt framlag og starf til félagsins.

Í tilkynningunni er haft eftir Finni að hann telji þetta réttan tímapunkt til að huga að öðru.

„Vel heppnuðum samruna Haga og Olís er nú lokið. Fyrsta heila rekstrarár sameinaðs félags er að baki, þar sem markmiðum samrunans var náð. Á þessum tímapunkti tel ég rétt fyrir mig persónulega að staldra við og huga að öðru og á sama tíma tel ég gott fyrir Haga að nýr aðili taki við keflinu með ferskar hugmyndir í farteskinu. Framundan eru fjölmörg tækifæri, en einnig spennandi áskoranir sem félagið er vel í stakk búið til að takast á við.  Mér er efst í huga þakklæti til þess samstarfsfólks og samferðafólks sem ég hef unnið með og kynnst á þeim rúmlega 22 árum sem ég hef starfað fyrir félagið.”

„Tíma mínum hjá Bónus er nú að ljúka og það verður erfitt að kveðja þetta frábæra fyrirtæki eftir hartnær þrjá áratugi. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð og ég kveð það fólk sem ég hef kynnst á þessum tíma með söknuði, þá sérstaklega öflugt og frábært starfsfólk Bónus, sem og samstarfsaðila og viðskiptavini,” er haft eftir Guðmundi í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK