Ásdís ráðin skjalastjóri Póstsins

Ásdís Káradóttir, nýr skjalastjóri hjá Póstinum.
Ásdís Káradóttir, nýr skjalastjóri hjá Póstinum. Ljósmynd/Aðsend

Ásdís Káradóttir hefur verið ráðin í starf skjalastjóra hjá Póstinum og hefur þegar hafið störf. Helstu verkefni skjalastjóra eru umsjón með skjalavörslukerfi Póstsins, stafræn þróun skjalastjórnar og mótun skjalastjórnarstefnu. Ásdís mun vinna þvert á fyrirtækið í ýmsum verkefnum sem snúa til dæmis að stafrænni þróun málaflokksins, upplýsingaöryggi og persónuverndarmálum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. 

Ásdís starfaði síðast sem skjalastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Áður var hún skjalastjóri hjá Íslandsbanka, skrifstofu Alþingis og fjármálaráðuneytinu. Þá hefur hún starfað sem ráðgjafi og ritstjóri hjá forsætisráðuneytinu, sem stundakennari og skjalavörður við Háskóla Íslands, sem skjalalesari á skrifstofu Alþingis ásamt því að vera sjálfstætt starfandi prófarkalesari og ritstjóri.

Ásdís er með meistarapróf í bókasafns- og upplýsingafræði frá Graduate School of Library & Information Science Simmons College í Boston og BA-próf í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands. Þá er hún með diplóma í lýðheilsufræðum á meistarastigi frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK