Gengi hlutabréfa Icelandair Group heldur áfram að hækka í Kauphöll Íslands. Það sem af er degi hafa bréf flugfélagsins hækkað um rétt tæplega 6% og stendur gengið nú í 2,01 kr. Nema viðskipti með hlutabréf fyrirtækisins um 15 milljónum króna.
Að Icelandair undanskildu er grænt um að litast í Kauphöllinni í dag. Hafa flest skráð fyrirtæki hækkað í viðskiptum dagsins. Mest hafa viðskipti verið með hlutabréf Marels það sem af er degi, eða rétt um 242 milljónum króna. Hækkunin er rétt tæplega 1%.