Kortavelta tók kipp 4. maí

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Innlend kortavelta tók kipp þegar strangasta hluta samkomubannsins var aflétt 4. maí og mátti sjá þess merki í notkun greiðslukorta. Þjónustufyrirtæki hafa almennt farið verr út úr COVID-ástandinu en verslanir ef miðað er við greiðslukortatölfræði Rannsóknaseturs verslunarinnar.

„Það fór líklega ekki framhjá mörgum þegar strangasta hluta samkomubannsins var aflétt þann 4. maí síðastliðinn. Afléttingin náði til ýmissa þjónustugreina sem höfðu þurft að leggja niður starfsemi vikurnar á undan. Þannig máttu, svo dæmi séu nefnd, hárgreiðslustofur, snyrtistofur, tannlæknastofur, sjúkraþjálfarar og nuddarar opna dyr sínar á nýjan leik. Þegar rýnt er í innlenda kortaveltu eftir dögum má sjá að landsmenn tóku opnunum fagnandi enda margir orðnir áfjáðir í að komast á nýjan leik í klippingu, sjúkraþjálfun og álíka,“ segir á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Þar kemur fram að innlendar kortatölur fyrir aprílmánuð sýndu 11% aukningu innlendrar kortaveltu í verslunum frá sama mánuði í fyrra á meðan mikill samdráttur var í kortaveltu þjónustufyrirtækja. 

Dagleg meðalvelta innlendra korta hérlendis hækkaði miðað við þetta um 43% á milli tímabilanna tveggja, fyrir og eftir afléttinguna 4. maí. Veltan þessa fyrstu 17 daga eftir afléttingu ströngustu takmarkana var þá jafnan um 15% hærri en dagleg meðalvelta innlendra korta í maí í fyrra. Hafa ber í huga að maí er jafnan veltuhærri mánuður en apríl en einnig að tölurnar eru á nafnvirði, segir á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK