Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum

Öll starfsemi Bláa lónsins á Svartsengi hefur verið lokuð undanfarið …
Öll starfsemi Bláa lónsins á Svartsengi hefur verið lokuð undanfarið eftir að ferðamenn hættu að streyma til landsins vegna kórónuveirufaraldursins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

403 starfsmönnum Bláa lónsins verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en þar segir að vonast sé til að hægt verði að ráða starfsfólkið aftur til starfa þegar ytri aðstæður breytast til hins betra.

Tekið er fram að laun þeirra starfsmanna sem ekki er sagt upp verði skert, mest hjá forstjóra og stjórn, um 30%, 25% hjá framkvæmdastjórn og minna hjá öðrum.

164 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp í marsmánuði.

„Bláa Lónið hefur gripið til aðgerða til að bregðast við miklum samdrætti og óvissu í ferðaþjónustu næstu misseri. Nú er orðið ljóst að áhrifin af Covid-19 eru miklu umfangsmeiri og langvinnari en væntingar voru um,“ segir í tilkynningunni.

Lónið opnað 19. júní

„Þrátt fyrir mikla óvissu hefur verið ákveðið að opna allar starfsstöðvar Bláa Lónsins á ný þann 19. júní næstkomandi, eftir tæplega þriggja mánaða lokun en á því tímabili hefur fyrirtækið verið nær tekjulaust.  

Markmið þeirra aðgerða sem Bláa Lónið hefur nú gripið til er að gera fyrirtækinu kleift að komast í gegnum þá óvissutíma sem framundan eru. Bláa Lónið, sem leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu, ætlar sér að taka þátt í viðspyrnu greinarinnar af fullum krafti þegar birta tekur að nýju.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK