EasyJet segir upp 30% starfsfólks

AFP

Breska flugfélagið EasyJet mun segja upp 4.500 starfsmönnum eða 30% af starfsfólki félagsins vegna minnkandi eftirspurnar af völdum kórónuveirunnar.

Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að EasyJet muni fljótlega hefja aðgerðir sem miða að því að fækka starfsfólki um 30%. Uppsagnirnar eru liður í að laga rekstur félagsins að aðstæðum í dag þar sem stór hluti áætlunarflugs liggur niðri.

Talsmaður félagsins segir að uppsagnirnar snerti 4.500 af 15 þúsund starfsmönnum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK