Nafninu breytt í VORAR

Auglýsingastofan heitir núna VORAR.
Auglýsingastofan heitir núna VORAR. Ljósmynd/Aðsend

Nafni auglýsingastofunnar Árnasynir hefur verið breytt í VORAR.

Nafngiftinni fylgir spáný ásýnd sem vísar í stefnu og framtíðarsýn stofunnar, að því er segir í tilkynningu.

Stofan mun áfram veita alhliða þjónustu í auglýsingagerð og markaðssetningu. Samhliða nafnabreytingunni flytur VORAR í nýtt húsnæði í Kringlunni.

„Stofan hefur vaxið og dafnað frá því að hún var stofnuð árið 2011 og ýmsar breytingar orðið á þessum 9 árum. Við vildum að nýja nafnið og eins að ásýnd fyrirtækisins væri táknrænt fyrir okkur og þá vinnu sem við innum af hendi. Vorinu fylgir ferskur blær og það eru gróskumiklir tímar fram undan,“ segir Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi auglýsingastofunnar.

„Hjá VORAR blómstra viðskiptavinirnir og markaðsstarfið springur út og því er nýja nafnið alveg kjörið. Að auki vildum við að ásýndin endurspeglaði betur þá staðreynd að 70% starfsmanna VORAR eru konur,“ bætir hún við.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK