Samdrátturinn 1,2%

Horft yfir Kópavog.
Horft yfir Kópavog. mbl.is/Sigurður Bogi

Áætlað er að landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2020 hafi dregist saman að raungildi um 1,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Þrátt fyrir umtalsverð neikvæð áhrif utanríkisviðskipta á hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi, sem að miklu leyti má rekja til samdráttar í ferðaþjónustu, jukust þjóðarútgjöld að raungildi á tímabilinu. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, jukust um 2,9% að raungildi á fyrsta ársfjórðungi 2020 borið saman við sama tímabil fyrra árs. Vöxtur einkaneyslu mældist 0,9% en vöxtur samneyslu 2,3%. Fjármunamyndun jókst um 4,1% frá sama tímabili fyrra árs sem einkum skýrist af grunnáhrifum útflutnings flugvéla á sama tímabili fyrra árs en án fjármunamyndunar í skipum og flugvélum mældist 15,8% samdráttur í fjármunamyndun samanborið við sama tímabil árið 2019.

„Þrátt fyrir merkjanleg áhrif Covid-19 á ýmsa liði einkaneyslu, ekki síst einkaneysluútgjöld Íslendinga erlendis, mældist töluverður vöxtur í öðrum liðum, meðal annars kaupum á bifreiðum. Benda fyrstu mælingar á einkaneyslu til þess að hún hafi aukist um 0,9% að raungildi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs borið sama við sama tímabil fyrra árs. Þar sem mælingar á einkaneyslu eru öllu jöfnu nokkuð háðar upplýsingum um virðisaukaskattsveltu sem vegna framkvæmdar innheimtu virðisaukaskatts hér á landi eru ekki orðin tiltæk að fullu fyrir ársfjórðunginn.

Í marsmánuði byrjar að gæta áhrifa af samkomubanni og lokana vegna Covid-19 á neysluútgjöld og eru því mælingar nú í auknum mæli byggðar á öðrum tiltækum upplýsingum, meðal annars upplýsingum um greiðslukortaveltu,“ segir á vef Hagstofu Íslands.

Heildarfjármunamyndun jókst um 4,1% á 1. ársfjórðungi 2020 sem skýrist einkum af grunnáhrifum en töluverður samdráttur mældist í atvinnuvegafjárfestingu á sama tímabili árið 2019 þegar útflutningur farþegaflugvéla átti sér stað í kjölfar gjaldþrota íslenskra flugfélaga.

Inn- og útflutningur skipa og flugvéla kemur með beinum hætti fram í fjármunamyndun, ýmist til hækkunar eða lækkunar og skipta þessar stærðir oft sköpum varðandi heildarfjárhæðir í fjárfestingu og utanríkisviðskiptum. Áhrif á landsframleiðslu eru aftur á móti lítil sem engin þar sem fjárfestingaráhrifin vega á móti áhrifum á utanríkisviðskiptin.

Að meðtöldum áhrifum af kaupum og sölu skipa og flugvéla jókst atvinnuvegafjárfesting um 9,5% að raungildi á fyrsta árfjórðungi þessa árs borið sama við sama tímabil fyrra árs en án þeirra áhrifa mældist 26,1% samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu á tímabilinu. Á sama tímabili jókst fjármunamyndun hins opinbera um 2,5% að raungildi borið sama við sama tímabil fyrra árs.

Hægir á fasteignamarkaði

„Þrátt fyrir að fjármunamyndun í íbúðarhúsnæði mælist enn mikil í sögulegu samhengi dróst hún saman að raungildi um 3,2% frá sama tímabili fyrra árs. Undanfarna fjóra ársfjórðunga hefur vöxtur íbúðafjárfestingar einkum byggst á fjölgun íbúða á síðari byggingastigum en útgefnum byggingarleyfum, sem öllu jöfnu teljast góð vísbending um vænta þróun íbúðafjárfestingar, hefur á sama tíma fækkað sem og íbúðum á fyrri byggingastigum. Á fyrsta ársfjórðungi 2020 fækkaði útgefnum byggingarleyfum þannig um 37,5% borið saman við sama tímabil árið 2019 en fjöldi íbúða, sem færist á lokastig byggingar, hefur hins vegar ekki mælst meiri síðan á árinu 2008,“ segir á vef Hagstofu Íslands.

Samdráttur í utanríkisviðskiptum

Á fyrsta ársfjórðungi 2020 mældist samdráttur í flestum undirliðum utanríkisviðskipta en þar sem útflutningur dróst meira saman en sem nemur samdrætti í innflutningi er framlag utanríkisviðskipta í heild til hagvaxtar neikvætt á tímabilinu.

Mestur samdráttur mældist í þjónustuútflutningi sem að hluta má rekja til áhrifa Covid-19 á komu ferðamanna hingað til lands en áhrifa faraldursins gætir einnig í öðrum liðum, meðal annars í þjónustuinnflutningi. Vöruútflutningur var áætlaður 150,2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 2020 en vöruinnflutningur 168,8 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður var því áætlaður neikvæður um 18,6 milljarða króna. Þjónustujöfnuður var áætlaður jákvæður um 24 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2020, útflutt þjónusta áætluð 115,5 milljarðar en innflutt þjónusta 91,4 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK