Styðja við atvinnusköpun kvenna

Sjóðurinn veitir ábyrgðir á lánum samkvæmt samþykktum og lánareglum hans …
Sjóðurinn veitir ábyrgðir á lánum samkvæmt samþykktum og lánareglum hans en skilyrði er að konur séu í meirihluta í stjórn og eigendahópi fyrirtækis eða verkefnis. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi starf Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna.

Tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja við konur sem eiga og reka smærri fyrirtæki, auka aðgengi kvenna að fjármagni og fjölga störfum og stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu. Sjóðurinn veitir ábyrgðir á lánum samkvæmt samþykktum og lánareglum hans en skilyrði er að konur séu í meirihluta í stjórn og eigendahópi fyrirtækis eða verkefnis.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna var fyrst stofnaður árið 1997 sem tilraunaverkefni félagsmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Hann var starfræktur í nokkur ár, lagðist af um tíma en var endurvakinn árið 2011 og hefur verið starfræktur nánast samfellt síðan en síðasta starfstímabili lauk í árslok 2018. Í dag eru í sjóðnum tæpar fimmtíu milljónir króna og gildir samningurinn til næstu fjögurra ára, að því er segir á vef ráðuneytisins. 

„Samkomulag um áframhaldandi starf lánatryggingasjóðsins er liður í viðleitni stjórnvalda að styðja við atvinnusköpun kvenna og auka hlut þeirra sem eigendur og stjórnendur fyrirtækja, ekki síst á tímum þar sem nýsköpun getur skipt máli við atvinnusköpun framtíðarinnar,“ lætur Katrín hafa eftir sér í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK