Pósturinn stöðvaður af eftirliti í þriðja sinn

mbl.is/Hari

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur tekið bráðabirgðaákvörðun þar sem Íslandspósti er gert að fresta gildistöku niðurfellingar á viðbótarafsláttum fyrir magnpóst. Félag atvinnurekenda (FA) gaf út tilkynningu fyrr í dag þar sem sagt er að með þessu sé PFS að stöðva ríkisfyrirtæki í að „drepa samkeppni“.

Hefðu áform Íslandspósts fengið fram að ganga hefðu tveir keppinautar fyrirtækisins, póstsöfnunarfyrirtækin Póstmarkaðurinn og Burðargjöld, neyðst til að hætta starfsemi, að sögn FA. 

„Pósturinn hefur tvisvar áður, 2012 og 2017, reynt að fella niður viðbótarafslætti stórnotenda, en í bæði skiptin verið stöðvaður af eftirlitsstofnunum. Aðeins rúmlega hálft annað ár er frá því að úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála stöðvaði Íslandspóst síðast í að segja upp afsláttarkjörum söfnunarfyrirtækja“, segir í tilkynningu frá FA. 

Fyrirtækin myndu neyðast til að hætta rekstri

Samkeppnisaðilarnir eru fyrirtæki sem safna pósti frá stórnotendum og miðla áfram til Íslandspóst. Þeim hefur verið veittur afsláttur upp á 2-5% „vegna þess hagræðis sem Pósturinn hefur af reglubundnum viðskiptum með mjög mikið magn bréfa frá söfnunarfyrirtækjunum“.

Í tilkynningu FA kemur fram að breytt póstlög geri áfram ráð fyrir því að afslættir af þessu tagi séu veittir. 

„Félag atvinnurekenda telur einsýnt að verði þessir magnafslættir afnumdir muni það kippa grundvellinum undan rekstri söfnunarfyrirtækjanna og þau neyðist til að hætta rekstri. Viðskipti þeirra munu falla ríkisfyrirtækinu sjálfu í skaut og einokunarstaða þess styrkist þá enn. Gjaldskrá til notenda póstþjónustu, sem í dag skipta við söfnunarfyrirtækin, myndi að mati félagsins hækka um allt að 70%.“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Ljósmynd/Aðsend

Ákvörðun PFS frestar gildistöku áforma Íslandspósts þar til stofnunin hefur haft ráðrúm til að ganga úr skugga um hvort áformin samræmist lögum, en þó ekki lengur en til ársloka.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir í tilkynningu að það skjóti skökku við að á sama tíma og íslenska ríkið sé í víðtækum aðgerðum með ærnum tilkostnaði til að bjarga fyrirtækjum og störfum skuli ríkisfyrirtæki „með pólitískt skipaða stjórn ganga svo hart fram í að drepa af sér þá takmörkuðu samkeppni sem þrífst á póstmarkaðnum og sjá til þess að einkafyrirtækjum verði skellt í lás“.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK