Icelandair flýgur milli Bandaríkjanna og Armeníu

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Icelandair mun á næstunni flytja á annað þúsund armenskra og bandarískra ríkisborgara á milli Los Angeles í Kaliforníu og Yerevan í Armeníu. Farþegarnir hafa verið strandaglópar vegna Covid-19 heimfaraldursins en hafa nú fengið heimild og tækifæri til að snúa til síns heima.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Um er að ræða sérverkefni á vegum Loftleiða Icelandic sem unnið er í samvinnu við stjórnvöld í Armeníu, flutningafyrirtækið Cross Line og kjörræðismann Íslands í Armeníu. Utanríkisþjónustan hefur einnig aðstoða við tilurð verkefnisins.

Flugvélar Icelandair af gerðinni Boeing 767 verða notaðar í verkefnið en þær taka um 260 farþega. Flogið er um Íslands sem liggur nokkurn veginn um miðja vegu milli Armeníu og Kaliforníu.

Fyrsta flugið fer frá Los Angeles laugardaginn 11. júli og fyrsta flug fer frá Yerevan mánudaginn 13. júlí. Fjöldi flugferða liggur ekki enn fyrir en farþegafjöldinn telur á um annað þúsund eins og áður segir.

„Þessi flug eru kærkomin viðbót“

Um milljón manna af armenskum uppruna búa í og við Los Angeles. Þjónustan um borð verður í samræmi við núverandi verklagsreglur Icelandair. Um 9 til 12 manns verða í hverri áhöfn, 2-3 flugmenn, sex flugfreyjur eða -þjónar og einn flugvirki.

Í tilkynningunni segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, verkefnið vera kærkomna viðbót við fraktflug frá Kína til Evrópu og Norður-Ameríku:

„Með því að nýta reynslu, þekkingu og alla innviði Icelandair Group hefur starfsfólk Loftleiða Icelandic, í samstarfi við ýmsar deildir samstæðunnar, sýnt mikla útsjónarsemi þegar kemur að sérverkefnum í leiguflugi. Þessi flug eru kærkomin viðbót við fraktflug frá Kína til Evrópu og Norður Ameríku sem Icelandair Group hefur sinnt á undanförnum vikum.

Verkefni sem þessi færa félaginu auknar tekjur og skapa störf fyrir starfsfólk þar sem undirbúningur og skipulag fer fram hér á landi. Þetta er gott dæmi um þann sveigjanleika sem Icelandair Group og dótturfélög þess búa yfir til að taka að sér verkefni sem þessi með skömmum fyrirvara.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK