Hætta útgáfu og styrkja prentun

Ásprent hættir útgáfu frétta- og auglýsingamiðla.
Ásprent hættir útgáfu frétta- og auglýsingamiðla. Af vef Ásprents

Ásprent-Stíll ætlar að hætta útgáfu miðla og hefur selt miðlastarfsemina til Útgáfufélagsins ehf. Samhliða þessu mun Ísafoldarprentsmiða koma inn í hluthafahóp Ásprents.

Útgáfufélagið ehf. kaupa Dagskrána, Skrána og Vikublaðið af Ásprenti en miðlarnir verða áfram gefnir út í sömu mynd og mun Ásprent áfram annast prentun þeirra.

Markmiðið með komu Ísafoldarprentsmiðju inn í hluthafahóp Ásprents er að efla framleiðslu og vöruframboð Ásprents. Að hagræða í prentrekstri Ásprents, auka við þjónustuframboð á starfsvæði félagsins á Norðurlandi og tryggja áframhaldandi prentþjónustu á Norðurlandi.

Ásprent-Stíll var stofnað í núverandi mynd 2003 með sameiningu prentsmiðjunnar Ásprents og auglýsingastofunnar og skiltagerðarinnar Stíls. Síðan þá hafa nokkur prentfyrirtæki runnið inn í Ásprent og má þar nefna Alprent, Límmiða Norðurlands, Prenttorg og Stell.

Ísafoldarprentsmiðja rekur stofnun sína aftur til 1877 og er því elsta prentsmiðja landsins. Fyrirtækið rekur eina stærstu prentsmiðju landsins í Garðabæ.

„Innkoma Ísafoldarprentsmiðju í hluthafahóp Ásprents-Stíls skapar mikil tækifæri til að veita fjölbreyttari  prentþjónustu á Norðurlandi og mæta þannig betur kröfum markaðarins.  Ég er sannfærður um að þessar breytingar verði hagfelldar fyrir bæði Ásprent og viðskiptavini fyrirtækisins.  Með þessum breytingum skapast einnig tækifæri til þróunar þeirra miðla sem nú flytjast yfir í sérstakt félag.“ segir Jón Steindór Árnason, framkvæmdastjóri Ásprents-Stíls, í fréttatilkynningu.

„Það er okkar trú að aukið samstarf Ísafoldar og Ásprents muni styrkja bæði félögin og, bæta vöruframboð þeirra. Við höfum í gegnum árin átt farsælt samstarf við starfsfólk Ásprents og hlökkum til að taka í árarnar með þeim“  segir Kristþór Gunnarsson framkvæmdastjóri Ísafoldarprentsmiðju, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK