Icelandair birtir kynningargögn fyrir útboð

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Kristinn Magnússon

Icelandair Group birti í kvöld í Kauphöll kynningargögn fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð félagsins. „Viðskiptamódel Icelandair Group hefur margsannað sig og við förum bjartsýn inn í það hlutafjárútboð sem nú er framundan,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu.

Í kynningargögnunum, sem eru 101 blaðsíða, er meðal annars rakið hvernig nýir kjarasamningar við flugmenn og -freyjur styrki samkeppnisstöðu félagsins, auk þess sem ríkisábyrgð á lánalínu tryggi stöðu þess verulega. 

Samkvæmt kynningargögnunum fer útboðið fram 14. og 15. september. Er það þó gert með fyrirvara um samþykki hluthafa um að endurnýja heimild félagsins til hlutafjáraukningar. Hluthafafundur verður haldinn 9. september. Gert er ráð fyrir að skráningarlýsing verði birt í næstu viku.

„Kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á félagið á liðnum mánuðum líkt og öll önnur flugfélög í heiminum. Fjárhagsstaða félagsins var góð áður en faraldurinn skall á og í kjölfar þeirra aðgerða sem við höfum gripið til og þeirra áætlana sem við höfum gert til framtíðar, hefur félagið alla burði til að koma sterkt út úr honum. Félagið býr yfir verðmætum innviðum, frábæru starfsfólki og mikilvægum viðskiptasamböndum. Þá er leiðakerfi Icelandair sveigjanlegt og byggir á einstakri staðsetningu Íslands sem tengimiðstöðvar á milli Norður Ameríku og Evrópu,“ er haft eftir Boga Nils.

„Icelandair gegnir lykilhlutverki í flugi til og frá Íslandi og mun, hér eftir sem hingað til, leggja áherslu á að tryggja öflugar flugsamgöngur og um leið aukin lífsgæði hér á landi. Ísland verður áfram eftirsóttur áfangastaður og við búumst við að tækifæri skapist á ný fyrir tengiflug yfir Atlantshafið þegar fram í sækir. Við leggjum höfuðáherslu á arðsemi leiðakerfisins og að viðhalda sveigjanleika til að geta brugðist hratt við breytingum á markaði. Í kjölfar hlutafjárútboðsins verður félagið enn betur í stakk búið til að grípa þau tækifæri sem gefast þegar eftirspurn eftir flugi eykst á ný.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK