Kjartan til Brunns Ventures

Kjartan Örn Ólafsson.
Kjartan Örn Ólafsson.

Kjartan Örn Ólafsson hefur gengið til liðs við Brunn Ventures og mun taka þátt í að stýra nýjum átta milljarða vísisjóði (e. venture capital fund) sem ýtt verður úr vör á haustmánuðum undir nafninu Brunnur vaxtarsjóður II.

Kjartan, sem hefur setið í stjórn Brunns vaxtarsjóðs frá stofnun árið 2015, verður fjárfestingastjóri hjá Brunni. 

Kjartan verður einn af fjórum fjárfestingastjórum í teyminu og mun starfa sem framtaksfjárfestingarstjóri (Venture Partner) samkvæmt því sem kemur fram í fréttatilkynningu.

„Það fyrirkomulag er oft haft á þegar reynslumikill frumkvöðull gengur til liðs við vísisjóð, tekur fullan þátt í öflun tækifæra, undirbúningi, greiningu og eftirfylgni að lokinni fjárfestingu sjóðsins en hefur þá sérstöðu að geta jafnframt verið virkur í öðrum fjárfestingaverkefnum sem ekki skarast við rekstur sjóðsins. Venture Partner fyrirkomulagið er algengt á meðal erlendra vísisjóða en er nú í fyrsta sinn innleitt á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu.

Kjartan hefur stofnað og rekið eigin nýsköpunarfyrirtæki, fjárfest og setið í stjórnum annarra bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Má þar nefna félög eins og Basno, GRID, Já, Datamarket og TeaTime.

Árið 2011 stofnaði Kjartan tæknifyrirtækið Basno Inc. sem starfar í New York. Áður var hann um árabil framkvæmdastjóri á viðskiptaþróunarsviði fjölmiðlafyrirtækisins Bertelsmann Inc. í New York. Þar stýrði hann nýsköpunarverkefnum fyrir dótturfyrirtæki þess svo sem Random House, SonyBMG Music og Fremantle Media. 

„Kjartan hefur áratuga reynslu af árangursríku nýsköpunarstarfi. Hann er reyndur frumkvöðull bæði hér á Íslandi og erlendis auk þess að vera farsæll englafjárfestir. Hann hefur viðamikið tengslanet í frumkvöðla- og vísiheiminum í Bandaríkjunum. Við höfum kynnst vel í gegnum starfið hjá Brunni og vitum að við eigum leið saman. Það gleður okkur innilega að fá hann í teymið og sem meðeiganda í sjóðnum“, segir Árni Blöndal fjárfestingastjóri og annar stofnenda Brunns Ventures, í fréttatilkynningu. 

Undanfarin ár hefur Kjartan verið virkur í íslensku nýsköpunarstarfi bæði beint og í gegnum nýsköpunar- og viðskiptaþróunarfélag sitt Volta ehf. og hefur meðal annars verið valinn íslenskur englafjárfestir ársins af Nordic Startup Awards.  

Utan viðskiptalífsins hefur Kjartan setið í stjórnum fjölmargra samtaka og stofnana svo sem American-Scandinavian Foundation, Hörpu tónlistarhúss, verið stjórnarformaður Listahátíðar í Reykjavík og er stjórnarformaður UNICEF á Íslandi. 

Kjartan er með BA-próf í heimspeki og rökfræði frá Háskóla Íslands og háskólanum í Genúa á Ítalíu og lauk MBA-gráðu frá Harvard Business School. 

„Ég hef setið í stjórn Brunns vaxtarsjóðs frá stofnun og hef unnið náið með þeim Sigurði Arnljótssyni og Árna Blöndal, fjárfestingastjórum Brunns Ventures. Sjóðurinn hefur náð eftirtektarverðum árangri og því er spennandi að taka þátt í stofnun næsta sjóðs og slást í hópinn sem fjárfestingastjóri. Það er fjölmargt áhugavert að gerjast meðal íslenskra frumkvöðla. Ég hlakka til að vinna með þeim og nýta reynslu mína til að auka líkurnar á að íslensk nýsköpunarfyrirtæki nái árangri á heimsvísu“, segir Kjartan Örn Ólafsson í fréttatilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK