Stefanía leiðir nýjan vísisjóð Eyris

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir verður framkvæmdastjóri Eyris Sprota II.
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir verður framkvæmdastjóri Eyris Sprota II. Ljósmynd/Aðsend

Eyrir Venture Management hefur ráðið Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur til þess að leiða nýjan vísisjóð sem Eyrir er að hleypa af stokkunum, Eyrir Sprotar II. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Eyrir Venture Management ehf. rekur fyrir vísisjóðinn Eyrir Sprotar ásamt því að annast allar sprotafjárfestingar Eyrir Invest. Að undanförnu hefur verið unnið að því að setja á fót nýjan vísisjóð, Eyrir Sprotar II, sem mun sérhæfa sig í að styðja við uppbyggingarferli íslenskra sprotafyrirtækja. Stefanía verður framkvæmdastjóri Eyris Sprota II.

„Ég er afskaplega spennt fyrir því að efla og vinna að framgangi nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Íslandi. Eyrir hefur verið í fararbroddi í fjárfestingum í nýsköpunarfyrirtækjum hérlendis og ég vonast til þess að geta lagt mitt af mörkum til þess að þau verkefni og ný tækifæri njóti framgangs og velgengni,“ segir Stefanía Guðrún í tilkynningu.

Stefanía Guðrún kemur til Eyrir Venture Management frá Landsvirkjun þar sem hún hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs. Áður starfaði Stefanía hjá CCP Games í átta ár, síðast sem framkvæmdastjóri CCP á Íslandi og þar áður sem yfirþróunarstjóri CCP í Shanghai í Kína og þróunarstjóri á Íslandi.

Áður hafði Stefanía unnið sem yfirverkefnisstjóri í upplýsingatækni hjá Orkustofnun og sem ráðgjafi í viðskiptagreind og vöruhúsalausnum.  Stefanía hefur einnig reynslu af nýsköpunarfyrirtækjum í gegnum stjórnarsetu og var stjórnarformaður fyrir Íslenskan leikjaiðnað og fyrir Icelandic Startups. Hún hefur starfað í stjórn hjá Flow VR, Tempo og er í dag stjórnarformaður Almannaróms, félags um máltækni á Íslandi og situr í stjórn Kards.

Stefanía er með M.Sc. gráðu í umhverfisfræði og B.Sc. gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands. Stefanía er gift Snorra Árnasyni, verkfræðingi, og eiga þau þrjú börn.

Ingvar, Magnús og Sigurlína einnig til liðs við Eyri

Auk Stefaníu hafa Ingvar Pétursson og Sigurlína Ingvarsdóttir nýverið gengið til liðs við Eyri Venture Management með því að taka sæti í fjárfestingarráði og stjórn hins nýja vísisjóðs sem verið er að setja á fót.

Ingvar Pétursson býr að áratuga reynslu sem stjórnandi í alþjóðlegum tæknifyrirtækjum. Hann lét nýlega af störfum sem framkvæmdastjóri fjármála (CFO) hjá Nintendo og hafði áður gengt stöðu tæknistjóra hjá félaginu (CTO). Meðal fyrri starfa Ingvars má nefna CIO Expedia, CTO Corbis og CIO AT&T Wireless. Ingvar hefur verið heiðraður af Puget Sound Business Journal og Seattle Business Magazine.

Sigurlína Ingvarsdóttir er margreyndur stjórnandi úr tölvuleikjaiðnaði á alþjóðavísu. Hún starfar í dag sem framleiðandi hjá Bonfire Studios í Bandaríkjunum en meðal fyrri verkefna má nefna yfirframleiðandi hjá FIFA í þróunarteymi Electronic Arts, CCP, Ubisoft og DICE þar sem hún stýrði framleiðslu tölvuleiksins Star Wars Battlefront.

Þá hefur Magnús Halldórsson, sem búsettur er í Seattle í Bandaríkjunum, unnið með Eyrir Venture Management að því að opna og styrkja samtöl við erlenda fjárfesta með margs konar samstarf í huga. Magnús hefur umtalsverða reynslu af því að vinna með íslenskum sprotafyrirtækjum og aðstoða þau við erlenda tengslamyndun. Eyrir Venture Management horfir sérstaklega til þess að nýta krafta og tengingar Magnúsar og Ingvars til að auka og styrkja sambandið við erlenda samstarfaðila og meðfjárfesta.

„Það er mikill liðsstyrkur fólginn í því að fá þetta öfluga og reynslumikla fólk til liðs við okkur“, segir Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Eyrir Venture Management. „Það er mikil gróska og fjölmörg spennandi tækifæri í íslenskum sprotaverkefnum og til að geta sem best nýtt þau tækifæri höfum við lagt ríka áherslu á að styrkja teymið sem kemur að slíkum verkefnum á okkar vegum. Við bjóðum þetta öfluga fólk velkomið til starfa og væntum mjög mikils af þeim í framtíðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK